Fjölsóttur aðalfundur VG í Reykjavík
Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Reykjavík hélt aðalfund sinn laugardaginn 25. september síðastliðinn og var hann vel sóttur. Svandís Svavarsdóttir var endurkjörin til formennsku í félaginu en ásamt henni eru í nýrri stjórn þau Guðný Hildur Magnúsdóttir, Gunnar Örn Heimisson, Grímur Atlason, Steinunn Þóra Árnadóttir, Sverrir Jakobsson og Þorleifur Gunnlaugsson. Til vara voru kosnar Guðrún Hallgrímsdóttir og Hervör Alma Árnadóttir.
Stjórnin mun leggja línur fyrir vetrarstarfið á allra næstu vikum en fullyrða má að laugardagsfundir verði með svipuðu sniði og undanfarið og félagið standi fyrir opnu húsi, fræðslustarfi og fundum sem ættu að falla að áhugasviði allra félaga í VGR.
Umræður voru kröftugar á fundinum og eftirfarandi ályktanir samþykktar:
Verkfallsréttur kennara
Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Reykjavík, haldinn 25. september 2004, styður heilshugar kennara í þeirra sjálfsögðu og löglegu kjarabaráttu. Rétturinn til að beita verkfalli í kjarabaráttu eru mannréttindi og helsta tæki launafólks til að ná fram kjarabótum. Verkfalli er einungis beitt í neyðartilvikum og allar tilraunir til að draga úr áhrifum þess eru aðför að réttindum launafólks.
Skorað er á deiluaðila að finna lausn á kjaradeilunni til hagsbóta fyrir allt landsfólk.
Stuðningur við kjarabaráttu sjómanna
Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Reykjavík lýsir stuðningi við kjarabaráttu sjómanna og fordæmir tilraun útvegsmanna að semja á bak við Sjómannasamband Íslands. Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Reykjavík hvetur félagsleg öfl í landinu til að taka höndum saman og hrinda tilraunum til að grafa undan samtakamætti verkalýðshreyfingarinnar.
Húsnæðismál
Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Reykjavík haldinn 25. september 2004 ítrekar þá grundvallarstefnu flokksins að enginn sé heimilislaus í Reykjavík eða annars staðar á landinu. Jafnframt að það eigi að vera höfuðmarkmið flokksins að tryggja nægilegt framboð á félagslegu húsnæði og fjölbreytt úrræði fyrir þá sem þurfa aðstoð í húsnæðismálum. Fundurinn hvetur alla sem starfa á vegum flokksins til að vinna af alefli að þessum markmiðum.

