ESB: Sósíalískur samruni eða nýtt heimsvaldatæki?
Kópavogsfélag Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs efnir til umræðufundar um Evrópumál í flokksmiðstöðinni að Suðurgötu 3 í Reykjavík þriðjudagskvöldið 5. október klukkan 20. Framsögur flytja Ragnar Arnalds og Kristrún Heimisdóttir.
Yfirskrift fundarins er: Íslendingar - hvers konar Evrópuþjóð? Hver erum við og hver viljum við verða? Fundarstjóri er Sigursteinn Másson og mun hann opna umræður með spurningunni: ESB - sósíalískur samruni eða nýtt heimsvaldatæki?
Allir velkomnir. Heitt á könnunni.

