Fréttir

Bág afkoma sveitarfélaganna einn mesti Akkilesarhællinn

1.10.2004

"Enginn vafi er að óviðunandi afkoma sveitarfélaganna skapar stórfellda hættu hvað snertir framtíðarhorfur samábyrgs velferðarsamfélags á Íslandi. Þá er ljóst að bág afkoma sveitarfélaganna er einn mesti Akkilesarhællinn í byggðalegu tilliti. Félagshyggjufólk og áhugafólk um jafnvægi í byggðaþróun verður að láta þessa hluti til sín taka. Skattalækkunaráform ríkisstjórnarinnar koma svo eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Sé ríkissjóður aflögufær um skatttekjur, sem verulega má efast um, væri þá ekki nær að þær tekjur færðust a.m.k. að verulegu leyti yfir til sveitarfélaganna til að bæta afkomu þeirra? Ætla sveitarstjórnarmenn ekki að minna á tilveru sína í tengslum við þessa skattaumræðu, eða hvað?" Þannig hljóðar upphaf greinar Steingríms J. Sigfússonar og Jóns Bjarnasonar sem birtist í heild sinni í greinahólfi síðunnar undir fyrirsögninni "Sveitarfélögin svelt til hlýðni".

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica