Þingmál Vinstri grænna í upphafi þings
Alþingi Íslendinga var sett 1. október eins og lög bjóða og nú með nokkuð sögulegum hætti. Nýkjörinn þingforseti, Halldór Blöndal, sá ástæðu til að halda áfram pólitískri umræðu sumarþings sem einkenndist af deilum um viðbrögð við þeirri höfnun forseta Íslands að staðfesta fjölmiðlalögin svokölluðu. Flestum er það mál og meðfylgjandi orðaskak í fersku minni og kom það flestum á óvart að þingforsetti setti á alllanga ræðu um þau efni við þetta tækifæri þar sem aðrir í þingsal höfðu ekki möguleika til að tjá sig. Blöskraði mörgum stjórnarandstæðingum svo mjög að þeir gengu úr þingsal undir ræðu Halldórs Blöndal. Gæti þessi uppákoma gefið til kynna að nýsett þing kunni að reynast stormasamt.
Nýr forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, flytur stefnuræðu ríkisstjórnarinnar mánudaginn 4. október og í umræðum um hana munu þau Steingrímur, Kolbrún og Jón taka til máls af hálfu VG. Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2005 verður svo þriðjudaginn 5. október.
Þingmenn Vinstri grænna hafa undanfarna daga og vikur unnið að gerð þingmála sem birtast næstu daga og fer hér á eftir listi yfir þau mál sem þegar hefur verið dreift eða verður dreift á allra næstu dögum:
Málalisti þingflokks VG í upphafi 131. löggjafarþings 2004-2005
1. Frv. til laga um breytingu á lögum nr. 75/2001, um sölu ríkissjóðs á hlutafé í Landsíma Íslands hf. (frestun á sölu hlutafjár til a.m.k. 2008)
2. Frv. til laga um breytingu á lögum um tekju- og eignaskatt (breyting á skatthlutfalli fjármagnstekna úr 10% í 18% ásamt 120 þús. kr. frítekjumarki á ári)
3. Tillaga til þingsályktunar um strandsiglingar
4. Frv. til laga um fórnarlamba- og vitnavernd
5. Tillaga til þingsályktunar um forræði yfir rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma
6. Frv. til laga um breytingu á vegalögum (umferðaröryggismál)
7. Frv. til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof
8. Tillaga til þingsályktunar um gjaldfrjálsan leikskóla
9. Tillaga til þingsályktunar um stofnbrautakerfi fyrir hjólreiðafólk
10. Tillaga til þingsályktunar um aðgang allra landsmanna að GSM-farsímakerfi
Fjöldi annarra mála er í vinnslu og af þeim sem þegar liggja fyrir má nefna eftirtalin:
Lög um atvinnuréttindi útlendinga, vernd og sjálfbæra nýtingu lífvera á hafsbotni, bætt starfsumhverfi kvennahreyfingarinnar, stækkun friðlandsins í Þjórsárverum, breytingar á lögum um nálgunarbann, endurgreiðslu á kostnaði við tannlækningar, rétt foreldra í fæðingarorlofi til sumarorlofs, aðgerðir til að fækka umferðarslysum af völdum búfjár, breytingar á lögum um sparisjóði, úttekt á áhrifum GATS-samningsins, breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, bann við umskurði, endurhæfingarmál, flutning á forræði yfir Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma frá iðnaðarráðherra til umhverfisráðherra og eflingu Fjármálaeftirlitsins.

