Fréttir

Söguleg þingsetning

4.10.2004

Setning Alþingis föstudaginn 1. október sl. var vægast sagt söguleg og hefur að vonum orðið fólki drjúgt umræðuefni og tilefni frétta-, leiðara- og greinaskrifa. Fyrst og fremst hefur ræða Halldórs Blöndal, nýkjörins þingforseta, verið til umræðu þar sem hann hélt í rauninni áfram deilum frá allsérstæðu sumarþingi og hefur síðan haldið því fram að hann hafi þar tekið til varna fyrir stöðu og sjálfstæði Alþingis. Sýnist sitt hverjum um þá skýringu og annað frekar sem ógni sjálfstæði Alþingis heldur en athafnir forseta Íslands.

Steingrímur J. Sigfússon skrifar m.a. grein í Fréttablaðið í dag og beinir þar ekki síst orðum sínum til Morgunblaðsins vegna viðbragða þess við ræðu Halldórs Blöndals. "Undirritaður er ekki klígjugjarn maður, en það skal viðurkennt að iðulega hefur sett að mér ógleði undanfarna mánuði þegar ráðherrar í ríkisstjórn, Morgunblaðið eða þess vegna Halldór Blöndal lýsa andvökum sínum og miklum áhyggjum yfir stöðu Alþingis". Greinin nefnist "Síðbúnar áhyggjur Morgunblaðsins af stöðu Alþingis" og birtist þar á bls. 14.

Þá fjallar Ögmundur Jónasson um þingsetninguna á vefsíðu sinni undir fyrirsögninni "Söguleg þingsetning". Ögmundur fjallar þar raunar um fleiri atriði þingsetningarinnar, t.d. um form hennar og hefðir, um prédikun prestsins, um ræðu forseta Íslands og svo ræðu Halldórs Blöndal og viðbrögðum Morgunblaðsins. Ögmundur segir m.a: "Að loknum hefðbundnum seremóníum hóf Halldór Blöndal, þá nýkjörinn forseti þingsins, upp mikinn lestur. Hatrammar deilur sumarsins voru vaktar upp, Ólafur Ragnar hafi sagt Alþingi stríð á hendur þegar hann neitaði að skrifa undir löggjöfina sem meirihlutinn á þingi hafði samþykkt um vorið. ÓRG væri arftaki arfakónga sem með neitunaravaldi sínu væri að grafa undan Alþingi sem væri "kjörið af þjóðinni".

Að mínu mati felst í þessum ummælum djúpstæður misskilningur. Alþingi starfar í umboði þjóðarinnar. Þegar þjóðinni eru fengin mál beint til úrlausnar þá er það undarlegt að halda því fram, að slíkt sé hneisa fyrir Alþingi. Samkvæmt slíkum skilningi væri Alþingi sett ofar þjóðinni! Þingið er að sjálfsögðu aðeins næstbesti kostur. Beint lýðræði er lýðræðislegasta fyrirkomulagið sem hugsast má. Það getur hins vegar verið erfitt í framkvæmd sökum þess hve svifaseint það er. Þess vegna neyðumst við til að taka kost númer tvö: Fulltrúalýðræði. Það er þennan næstbesta kost sem Halldór Blöndal er að verja, en gagnvart hverjum? Hann er að verja þingræði gagnvart þjóðinni! Það verður hins vegar ekki af forseta Alþingis skafið að þar talar maður af sannfæringu. Það er í sjálfu sér alltaf virðingarvert."

Lesendur geta lesið greinina alla með því að fara á slóðina http://www.ogmundur.is/news.asp?id=657&news_ID=1878&type=one

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica