Sandfok hefti för fulltrúa á aðalfund
Kjördæmisráð VG í Suðurkjördæmi hélt aðalfund sinn í flokksmiðstöðinni Suðurgötu 3, Reykjavík, laugardaginn 25. september sl. Ekki virtist koma að sök þótt fundurinn væri haldinn í Reykjavík og var vel mætt frá öllum svæðisfélögum að öðru leyti en því að sandfok hefti för fulltrúa yfir Mýrdalssand. Auk venjulegra aðalfundarstarfa urðu miklar og líflegar umræður um stjórnmálin og var þar bæði litið um öxl, staða líðandi stundar metin og horft til framtíðar. Gestur fundarins var Atli Gíslason lögmaður og varaþingmaður VG í Reykjavík norður. Hann ræddi um kosningabaráttuna 2003, lýsti reynslu sinni af þingstörfum nokkurra vikna á síðasta löggjafarþingi og ræddi um brýnustu umfjöllunarefni Vinstri grænna. Þorvaldur Örn Árnason ritaði ýtarlega fundargerð þar sem margt athyglisvert er skráð.
Eftirtalin voru kjörin í stjórn kjördæmisráðsins:
Þorsteinn Ólafsson formaður, Þorvaldur Örn Árnason ritari, Jóhanna Njálsdóttir gjaldkeri, Ólafía Jakobsdóttir meðstjórnandi og Heimir Þór Gíslason meðstjórnandi. Varamenn eru Finnbogi Vikar Guðmundsson og Þórunn Friðriksdóttir.

