Fréttir

Ráðstefna VG um sveitarstjórnarmál

9.10.2004

Laugardaginn 16. október efna Vinstri grænir til ráðstefnu um sveitarstjórnarmál þar sem rædd verður staða sveitarfélaganna, brýnustu verkefni sveitarstjórna og stefna Vinstri grænna í helstu málaflokkum. Ráðstefnan hefst í húsnæði VG í Suðurgötu 3, Reykjavík, kl. 9:00 á laugardagsmorguninn, en eftir hádegishlé verður opinn fundur á Hótel Loftleiðum frá kl. 13 ? 17. Að loknum fundi býður svo forseti borgarstjórnar til heimsóknar í  Ráðhús Reykjavíkur.

  

Dagskrá

 

kl. 09:00           Setning: Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG

Sveitarstjórnarmenn, þingmenn, stjórn flokksins og formenn félaga ræða um stöðuna í sveitarstjórnarmálum, horfur o.þ.h.

                       

Umræðum stjórna Svandís Svavarsdóttir Reykjavík og Lilja Rafney Magnúsdóttir Ísafjarðarbæ.

 

kl. 12:00           Hádegishlé

 

kl. 13:00           Opinn fundur VG um sveitarstjórnarmál

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þórður Skúlason framkvæmdastjóri þess verða gestir fundarins og fjalla um helstu verkefni sveitarfélaga, samskipti við ríkisvaldið, eflingu sveitarstjórnarstigsins, tekjustofna o.fl. 

 

Umræður og fyrirspurnir.

 

kl. 14:30           Stefnumál VG í næstu sveitarstjórnarkosningum

                                    Framsöguerindi:

                                    Samskiptin við ríkið: Reinhardt Reynisson, Húsavík

Umhverfismál: Katrín Jakobsdóttir, Reykjavík

                                    Atvinnumál og nýsköpun: Bjarni Jónsson, Skagafirði

                                    Skólamál: Valgerður H. Bjarnadóttir, Akureyri

 

                        Almennar umræður

                        Umræðustjórar: Stefanía Traustadóttir, Ólafsfirði og Ársæll Guðmundsson, Skagafirði.

 

kl. 17:15           Heimsókn í Ráðhúsið í boði forseta borgarstjórnar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica