Fréttir

Um samstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks í Skagafirði

11.10.2004

Vinstri grænir í Skagafirði héldu félagsfund í gær, sunnudaginn 10. október, og ræddu m.a. þá stöðu sem upp er komin í samstarfi þar um stjórn sveitarfélagsins. Samþykkt var eftirfarandi ályktun:

"Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lýsir yfir fullum stuðningi við störf  fulltrúa sinna í sveitarstjórn sem unnin eru af heilindum og í samræmi við samstarfssamning og verklagsreglur sem sveitarstjórnarfulltrúar Vinstri Grænna og Sjálfstæðisflokks gerðu með sér í upphafi samstarfs síns og þeir staðfestu með undirskrift sinni. Þar er m.a. kveðið á um að" horfið verði frá áformum um virkjun við Villinganes " og var það einn af hornsteinum samkomulagsins.

Fundurinn leggur áherslu á að staðið verði við öll ákvæði samstarfssamningsins og að fylgt verði þeim reglum sem flokkarnir hafa sett sér um framlagningu og úrvinnslu mála sem lögð eru fyrir sveitarstjórn.

 

Fundurinn telur að framlagning og samþykkt tillögu Bjarna Maronssonar um að Villinganesvirkjun fari til kynningar sem samþykkt tillaga sveitarstjórnar að aðalskipulagi feli í sér trúnaðarbrest gagnvart samstarfsfólki, jafnframt því að vera skýlaust brot á samstarfsamningi flokkanna.

 

Að mati fundarins hefur samstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðismanna í sveitarstjórn í heild sinni gengið vel og verið árangursríkt. Fundurinn væntir þess að Sjálfstæðisflokkurinn sjái til þess að umræddur tillöguflutningur nái ekki fram að ganga og forði þar með stjórnarslitum þessara flokka. 

 

Félagsfundurinn lýsir eindregnum vilja sínum til áframhaldandi samstarfs með Sjálfstæðisflokki í sveitarstjórn Skagafjarðar og myndi harma ef Sjálfstæðisflokkurinn tæki þá ákvörðun að slíta samstarfinu með ofangreindum hætti."

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica