Fréttir

Ályktanir um veiturnar í Skagafirði

12.10.2004

Á félagsfundi Vinstri grænna í Skagafirði 10. október sl. var m.a. rætt um möguleika á því að rifta sölunni á Rafveitu Sauðárkróks til RARIK eða að sveitarfélagið leysi Rafveituna aftur til sín. Einnig var rætt um nauðsyn þess að standa vörð um sjálfstæði Skagafjarðarveitna. Samþykktar voru ályktanir um þessi efni og fara þær hér á eftir:

 

Söluferli Rafveitu Sauðárkróks verði rannsakað og endurskoðað

Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Sveitarfélaginu Skagafirði skorar á sveitarstjórn að taka til skoðunar söluferil Rafveitu Sauðárkróks. Jafnframt er skorað á sveitarstjórn að leita allra leiða til að rifta þeirri sölu eða leysa Rafveituna aftur til sín á hliðstæðum kjörum og hún var seld á. Minnt er á að ríkisvaldið lagði Rarik fé til kaupanna á sínum tíma.

 

Greinargerð:

Á síðasta valdaári Framsóknarmanna og Skagafjarðarlistans í sveitarstjórn Skagafjarðar var Rafveita Sauðárkróks seld, þvert gegn vilja meginþorra heimamanna. Rafveita Sauðárkróks var stöndugt fyrirtæki sem veitti góða þjónustu á hagkvæmu verði.

 

Nú eru að koma fram sterkar vísbendingar um að ekki hafi verið allt með felldu í söluferli Rafveitunnar. Heildarsöluverð Rafveitu Sauðárkróks var uppgefið  kr. 330 milljónir. Komið hefur í ljós að frá þessu söluverði hafi verið dregnar lífeyrissjóðsskuldbindingar Rafveitunnar að upphæð kr. 34,5 milljónir og tapaðar viðskiptakröfur sem nema hið minnsta um kr. 28 milljónum, samanlagt meira en 62 milljónir króna, auk þess sem sveitarfélagið situr uppi með íþyngjandi og ógreitt húsnæði við Faxatorg 1 sem það getur ekki losað sig við en áður var í eigu Rafveitu Sauðárkróks. Nauðsynlegt er að upplýsa hvert nettósöluverð Rafveitunnar reynist. Þá óskast upplýst um efndir Rarik á ýmsum öðrum ákvæðum  sölusamningsins sem nefnd hafa verið til sem réttlæting sölunnar. Upplýsa þarf hvort löglega hafi verið staðið að útboði og sölunni á sínum tíma og hvort borist hafi önnur tilboð heimamanna, jafnvel hagstæðari, sem hafi verið hafnað og hvort þau hafi þá fengið sambærilega meðferð og tilboð Rarik.

  

Sveitarfélagið eigi áfram Skagafjarðarveitur og þær verði elfdar

Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Sveitarfélaginu Skagafirði skorar á sveitarstjórn að standa vörð um sjálfstæði Skagafjarðarveitna. Mikilvægt er að Skagafjarðarveitur verði áfram að fullu í eigu sveitarfélagsins og veiturnar verði efldar m.a. með því að þær yfirtaki veitur Rarik í héraðinu og til frekari þróunar á nýtingu jarðhita í Skagafirði.

 

Greinargerð:

Með því að koma Framsóknarmönnum út úr sveitarstjórn eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar tókst að forða því að haldið yrði áfram á sömu braut og með sölu á Rafveitu Sauðárkróks og Skagafjarðarveitur seldar. Nú liggja fyrir samningsdrög frá Norðurorku á Akureyri sem felur í sér yfirtökuboð á Skagafjarðarveitum ásamt frekari íhlutun í orkumál Skagfirðinga. Ekki er ljóst hvort þetta tilboð er unnið í samráði við pólitísk öfl heima fyrir  sem sýnt hafa í verki vilja sinn til að selja veitur og aðrar dýrmætar eignir Skagfirðinga úr héraði. Skagfirðingar eiga að standa vörð um Skagafjarðarveitur og nýta þær til að bæta lífsgæði í héraðinu og til enn frekari atvinnusköpunar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica