Fjarskiptasamband um allt land
Vinstri græn í Skagafirði létu rækilega til sín heyra um síðustu helgi þegar þau ræddu stjórnmálin á félagsfundi sunnudaginn 10. október sl. Ályktanir þeirra um samstarfið við stjórnun sveitarfélagsins og um veiturnar í sveitarfélaginu hafa þegar birst hér á síðunni, en þau ályktuðu einnig um nauðsyn þess að bæta fjarskiptasamband um allt land og fer sú ályktun hér á eftir:
"Félagsfundur Vinstri- grænna í sveitarfélaginu Skagafirði leggur áherslu á að efla þurfi fjarskiptasamband og gsm samband um allt land. Mikið skortir á að landsmenn sitji við sama borð hvað þessa þjónustu varðar. Fundurinn mótmælir öllum hugmyndum um sölu Símans og dreifkerfi hans. Mun frekar eigi að nota styrk fyrirtækisins sem nánast alfarið er í ríkiseign til að byggja upp öflugt fjarskiptakerfi um allt land. Fundurinn bendir á að nú er söluferli Símans í höndum forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins sem yfirmanns Einkavæðinganefndar en skoðanakönnun fyrir tæpum 2 árum sýndi að meirihluti þjóðarinnar vildi að Síminn yrði áfram í opnberri eigu og mikill meirihluti framsóknarmanna var þeirrar skoðunar.
Fundurinn skorar á Alþingi að samþykkja tillögu þingmanna Vinstri grænna um stöðvun á söluferli Símans."

