Áskorun VG: Samningum ljúki hið fyrsta
Vinstrihreyfingin - grænt framboð hélt ráðstefnu og opinn fund um sveitarstjórnarmál í dag, laugardaginn 16. október. Ráðstefnan var vel sótt og tókst í alla staði vel og verður sagt frá henni nánar síðar og birt greinargerð um sveitarstjórnarmál sem samþykkt var á fundinum. Yfirstandandi launadeila sveitarfélaga og grunnskólakennara var talsvert rædd og eftirfarandi áskorun samþykkt:
"Þátttakendur á sveitarstjórnarráðstefnu Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs Hótel Loftleiðum 16. október 2004 skora á málsaðila í launadeilu sveitarfélaganna og grunnskólakennara, ríkisvaldið og alla þá sem lagt geta sitt af mörkum að gera það sem í þeirra valdi stendur til að ljúka samningum á næstu sólarhringum.
Því ófremdarástandi sem fólgið er í verkfalli og launaleysi 4500 kennara og langvarandi röskun á skólagöngu 45 þúsund grunnskólabarna verður að linna.
Fundurinn fagnar frumkvæði þingflokks VG í nýframlögðu frumvarpi um að styrkja tekjustofna sveitarfélaga og gera þeim þar með auðveldara að greiða starfsmönnum sínum góð laun."

