Frumvarp VG um tekjustofna sveitarfélaga
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Frumvarpið felur það í sér að heimildir sveitarfélaganna til álagningar útsvars verði rýmkaðar um eitt prósentustig, þ.e. úr 13,03% í 14,03%. Frumvarpið er flutt í beinum tengslum við boðuð áform ríkisstjórnarinnar um að lækka álagningu tekjuskatts um 1% um næstu áramót. Samanlagt álagningarhlutfall tekjuskatts og hámarks útsvarsheimildar héldist því óbreytt.
Afkoma sveitarfélaganna, sem vissulega er mismunandi, er í það heila tekið óviðunandi og brýnt að grípa til ráðstafana til að bæta stöðu þeirra. Teljist ríkissjóður aflögufær um tekjur er því nærtækt að færa þær tekjur að einhverjum hluta a.m.k. til sveitarfélaganna. Tekjutap ríkissjóðs vegna áformaðrar eins prósentustigs lækkunar tekjuskatts er nálægt fimm milljarðar króna brúttó. Sé heimild sveitarfélaganna til hækkunar útsvars aukin að sama skapi úr 13,03 í 14,03% þá gæfi það sveitarfélögunum svigrúm af sömu stærðargráðu til að auka útsvarstekjur sínar.
Sveitarfélögin hafa að undanförnu yfirtekið sífellt fleiri og þyngri verkefni á sama tíma og tekjustofnar þeirra hafa verið skertir. Sú staða kristallast m.a. í yfirstandandi launadeilu sveitarfélaganna og grunnskólakennara. Það er skoðun flutningsmanna að ekki verði undan því vikist að grípa til ráðstafana til að bæta stöðu sveitarfélaganna. Sá er tilgangur frumvarps VG.
Hægt er að nálgast frumvarpið á slóðinni http://www.althingi.is/altext/131/s/0194.html

