Fréttir
Aðalfundur VG á Suðurnesjum
Aðalfundur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Suðurnesjum
verður haldinn í Víkinni, sal verkalýðsfélagsins við Hafnargötu í Keflavík,
þriðjud. 16. jan. kl. 20.
Dagskrá:
- Skýrsla formanns og gjaldkeri leggur fram reikninga.
- Kosin ný stjórn.
- Ákvarðað félagsgjald og kosnir skoðunarmenn reikninga
- Tillaga að lagabreytingum. Stjórnin leggur til að stjórnarmönnum verði fjölgað úr 3 í 5.
- Kosning fulltrúa á landsfund VG sem verður haldinn í Reykjavík 23. - 25. febrúar. Þar gefst okkur tækifæri til að hafa veruleg áhrif á stefnu og starf flokksins í kosningunum í vor og framvegis. Okkar félag á rétt á að kjósa 12 landsfundarfulltrúa.
- Starfið framundan og önnur mál. Kynnt verða drög að baráttumálum á Suðurnesjum í kosningunum. Atli Gíslason, oddviti okkar, verður á fundinum og tekur þátt í þeirri umræðu.
Bestu kveðjur. Fyrir hönd stjórnar: Þorvaldur Örn, formaður VG á Suðurnesjum

