Stjórnmálasmiðjur Ungra vinstri grænna
Ung vinstri græn sitja ekki auðum höndum frekar en endranær og eru nú að hleypa af stokkunum smiðjurekstri eða svonefndum stjórnmálasmiðjum. Smiðjureksturinn hefst kl. 20 fimmtudaginn 21. október nk. og verður hvern fimmtudag næstu fimm vikurnar þar sem í boði eru spennandi umræðuefni og góðir frummælendur.
Fyrsta smiðjan snýst um málefni umhverfis og náttúruverndar og þar verða með framsögu þeir Andri Snær Magnason og Hjörleifur Guttormsson. Fimmtudaginn 28. október leiða Steingrímur J. Sigfússon og Pétur H. Blöndal saman hesta sína um skattamál. Fimmtudaginn 4. nóvember er röðin komin að jafnréttismálunum þar sem Atli Gíslason opnar umræðuna. Utanríkismálin verða á dagskrá 11. nóvember undir leiðsögn Sverris Jakobssonar og Páls Hilmarssonar. Og 18. nóvember mun Katrín Jakobsdóttir opna umræður um algengar mýtur um vinstrimenn.

