"Skólagjaldapólitík Sjálfstæðisflokksins"
"Í umræðum um eflingu tæknináms á háskólastigi verður að hafa það í huga að forsvarsmenn THÍ (áður Tækniskóla Íslands) hafa gengið sig upp að hnjám undanfarin ár við að krefjast úrbóta og hærri fjárframlaga frá ríkisstjórninni. En þeir nauðsynlegu fjármunir hafa ekki legið á lausu fyrr en nú þegar þeir verða reiddir fram með sameiningunni við HR. THÍ hefur nú verið sveltur inn á skólagjaldabrautina, aðeins tveimur árum eftir að hann var stofnaður með lögum frá Alþingi", segir Kolbrún Halldórsdóttir m.a. í grein sinni "Skólagjaldapólitík Sjálfstæðisflokksins", sem birtist í greinahólfi hér til hægri.

