Fréttir

Ályktun um stóriðjumál í Eyjafirði

2.11.2004

Laugardaginn 30. október var haldinn aðalfundur í félagi Akureyrar og nágrennis og málþing í tengslum við fundinn. Félagarnir þar nyrðra sendu frá sér ályktun um stóriðju þar sem fagnað er hugmyndum um álþynnuverksmiðju á Akureyri en varað við hugmyndum um risaálver í Eyjafirði. Í ályktuninni segir m.a.: ?Bygging og rekstur 350?400 þúsund tonna álvers munu kalla á gífurlegar virkjunarframkvæmdir, sem leiða til náttúruspjalla og þétts rafmagnslínunets um Norðurland allt. Þá bryti rekstur slíks álvers við núverandi aðstæður í bága við mengunarstaðla Kyotosamþykktarinnar. Að lokum má minna á hættuna sem felst í því að virkja og selja meira og minna alla
raforku landsins til einnar atvinnugreinar."

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica