Stærsta ferðamálaverkefni Íslandssögunnar?
Kjördæmisþing Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi var haldið að Staðarflöt í Hrútafirði á dögunum. Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundinum:
?Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi leggur til að hafin verði stórsókn í uppbyggingu á kjördæminu sem sérstöku ferðaþjónustusvæði. Gerð verði sérstök átaksáætlun til næstu 5 ára sem hafi það að markmiði að treysta grunnstoðir ferðaþjónustunnar á svæðinu. Þingið skorar á Alþingi og ríkisstjórn að veita til þessa verkefnis a.m.k. einum milljarði króna árlega næstu fimm árin.
Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem vex nú hvað hraðast og skilar mestri árlegri aukningu í nettó gjaldeyristekjum til þjóðarbúsins. Ferðaþjóustan er nú orðin ein stærsta atvinnugrein þjóðarinnar og skilar 40-50 miljörðum króna í gjaldeyristekjur á ári.
Gert er ráð fyrir þreföldun ferðamanna til landsins á næstu 10 árum. Skagafjörður, Húnvatnssýslur, Vestfirðir allir suður um Breiðafjörð, Dali, Snæfellsnes og Borgarfjörð eru auðug af náttúruperlum, sögu og menningararfi. Þessa fjölbreyttu kosti má nýta enn betur á sjálfbæran hátt til eflingar þessari atvinnugrein, sbr. jökulvötnin í Skagafirði með heimsfrægum fljótasiglingum, jöklaferðir, gjöfular veiðiár, eyjar og lífríki Breiðafjarðar, ægifegurð Vestfjarða, þjóðgarð á Snæfellsnesi svo nokkuð sé nefnt. Hér er vagga sagnaritunar og sögusvið Íslendingasagna.
Styrking ferðaþjónustunnar er eitt nærtækasta verkefnið til að auka fjölbreytta atvinnu á svæðinu sem heild. Til þess að svo megi verða þarf að styrkja grunnstoðirnar og markaðsstarfið, en þar vantar fjármagn sem eðlilegt er að hið opinbera leggi til. Fyrir einn milljarð á ári í fimm ár má lyfta Grettistaki í atvinnumálum þeirra landshluta sem mynda kjördæmið.?

