Fréttir

Ályktanir kjördæmisráðsþings VG í Norðvesturkjördæmi

9.11.2004

Áður hefur verið sagt frá ályktun kjördæmisráðsþingsins að Staðarflöt í Hrútafirði um uppbyggingu Norðvesturlands sem sérstaks ferðaþjónustusvæðis. Fundurinn ályktaði jafnframt um fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga, innrásarstríðið í Írak, skipuleg uppkaup á bújörðum og menntamál. Þessar ályktanir fara hér á eftir:

?Ályktun um fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga  

Fundurinn skorar á Alþingi að breyta nú þegar í stað lögum þannig að tekjustofnar sveitarfélaganna verði styrktir þannig að þau geti staðið undir nauðsynlegum rekstrarverkefnum og eðlilegri uppbyggingu og greitt starfsfólki sínu góð laun.

Fundurinn bendir á að stöðugt hefur hallað á sveitarfélögin í fjárhagslegum samskiptum við ríkið. Koma verður tekjugrunni sveitarfélaganna miðað við núverandi verkefni í lag áður en rætt er um frekari flutning verkefnatil þeirra. Fundurinn hvetur Alþingi til að samþykkja tillögu þingmanna VG um aukna tekjufærslu frá ríki til sveitarfélaga.

 

Ályktun um innrásarstríðið í Írak

 

Fundurinn mótmælir þátttöku Íslands í innrásarstríðinu í Írak og krefst þess að sá stuðningur verði þegar í stað dreginn til baka og forsætis- og utanríkisráðherra biðji þjóðina afsökunar á að hafa tekið þátt í þessu hörmungarstríði. Þá mótmælir fundurinn þeirri stefnu að íslenskt friðarstarf á alþjóðavetvangi sé misnotað til að setja Íslendinga undir alvæpni við hlið innrásarherja Bandaríkjamanna.

 

Ályktun um skipuleg uppkaup á bújörðum

 

Fundurinn lýsir þungum áhyggjum vegna skipulagðra uppkaupa stóreignamanna og fyrirtækja á bújörðum og framleiðsluheimildum í landbúnaði. Fari fram sem horfir mun land á Íslandi lenda í höndum örfárra manna en bændur verða að réttlitlum leiguliðum. Stórfelld samþjöppun framleiðslueininga í landbúnaði er andstæð lögmálum sjálfbærrar þróunar og dregur úr öryggi framleiðslunnar gagnvart neytendum. Fundurinn skorar á Alþingi að tryggja með lögum réttarstöðu sjálfseignarbóndans og fjölskyldubúsins sem grunneiningu í fjölbreyttum íslenskum landbúnaði. Koma verður í veg fyrir raðuppkaup jarða og að þær eða aðrar náttúruauðlindir landsmanna lendi hjá auðhringum eða í höndum útlendinga.

 

Ályktun um menntamál

 

Kjördæmisþing Vinstri-Grænna fagnar stofnun Framhaldsskóla Snæfellinga. Samfellt nám a.m.k til 18 ára aldurs í heimabyggð er krafa VG. Fundurinn vill þakka framgöngu þingmanna VG í þessu máli og ber þar sérstaklega að nefna atbeina  Jóns Bjarnasonar við stofnun skólans sem ásamt einarðri samstöðu heimmanna réð miklu um stofnun hans.

 

Fundurinn leggur áherslu á eflingu tækni- og háskólanáms á svæðinu og fagnar uppbyggingu háskólanna á Hólum, Hvanneyri og Bifröst. Fundurinn styður eindregið stofnun Háskóla Vestfjarða á Ísafirði og að hann fái að starfa sjálfstætt á eigin forsendum. Minnt er á að stofnun Háskóla á Ísafirði var ein af kosningaáherslum Vinstri-Grænna við síðustu alþingiskosningar. Þá telur þingið brýnt að koma á  tækni- og háskólanámssetri á Akranesi með áherslum á nám sem m.a. tengist þeim fjölbreytta iðnaði sem þar er .

 

Þingið mótmælir áætlunum ríkisstjórnarinnar um hækkun innritunargjalda og töku skólagjalda í ríkisháskólum.

 

Ályktun um Landsímann

 

Kjördæmisþing Vinstri-Grænna í Norðvesturkjördæmi haldið á Staðarflöt í Hrútafirði 30. október 2004 hvetur til þess að GSM-kerfið og annað fjarskiptasamband verði eflt um land allt svo landsmenn njóti jafnréttis til þessarar þjónustu. Fundurinn mótmælir öllum hugmyndum um sölu Landssímans og dreifikerfis hans. Mun fremur á að nota styrk fyrirtækisins til að byggja upp öflugt fjarskiptakerfi um allt land. Bent er á að söluferli Landssímans er í höndum forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins sem yfirmanns Einkavæðingarnefndar. Ábyrgð framsóknarmanna á framvindu málsins er því mikil. Fundurinn skorar á Alþingi að samþykkja tillögu þingmanna Vinstri-Grænna um stöðvun á söluferli Landssímans.

 

Ályktun um samgöngumál

 

Fundurinn skorar á Alþingi og samgönguráðherra að beita sér fyrir átaki í samgöngubótum í Norðvesturkjördæmi og finna leiðir til að lækka gjaldtöku í Hvalfjarðargöngum. Hugað verði sérstaklega að námsmönnum og fólki sem fara þarf daglega um göngin atvinnu sinnar vegna. Fundurinn bendir á að eðlilegt er að gert sé ráð fyrir slíku í samgönguáætlun Alþingis."

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica