Fréttir

Ályktanir félagsfundar VG í Reykjavík

10.11.2004

Þriðjudaginn 9. nóvember hélt Reykjavíkurfélag VG almennan félagsfund til að ræða málefni R-listans og önnur mál líðandi stundar. Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á fundinum:

?Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík 9. nóvember 2004 harmar auðgunarbrot olíufélaganna gegn almenningi sem koma fram í skýrslu Samkeppnisráðs. Ljóst er að hér er á ferð alvarlegt mál sem varðar almannaheill og mikilvægt að einstaklingar axli ábyrgð á sínum þætti í þessu máli.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Reykjavík metur þá ákvörðun Þórólfs Árnasonar að láta af starfi sínu sem borgarstjóri. Með þeirri ákvörðun hefur hann látið hagsmuni Reykjavíkurlistans og Reykvíkinga hafa forgang og um leið beint kastljósinu að þeim gerendum olíusvindlsins sem mesta ábyrgð bera. Hann er maður að meiri fyrir vikið.

 

Mikilvægt er að fram komi að VG Reykjavík telur að Þórólfur Árnason hafi gegnt starfi sínu sem borgarstjóri af trúmennsku og heilindum og óskar honum alls hins besta.

 

VG í Reykjavík tekur undir yfirlýsingu borgarfulltrúa Reykjavíkurlistans um að samstarfið um Reykjavíkurlistann og þau stefnumál sem hann stendur fyrir haldi áfram.

 

Félagsfundurinn felur fulltrúum flokksins að vinna að því í samráði við samstarfsaðila VG innan Reykjavíkurlistans að ákveða hvernig verkaskiptingu við stjórn borgarinnar verður háttað og hver verði borgarstjóri.

 

Ályktun um kennaraverkfall

 

Félagsfundur VGR 9. nóvember 2004 harmar þá stöðu sem upp er komin í samfélaginu vegna verkfalls grunnskólakennara. Fundurinn ítrekar fullan stuðning við kennara og kröfur þeirra. Fundurinn skorar á hlutaðeigandi aðila að leysa án tafar þann hnút sem málið er komið í með því að skoða allar hugsanlegar leiðir.

 

Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi og trausti við kjörna fulltrúa flokksins í  borgarstjórn og að þeir beiti sínu pólitíska afli til að leysa það ófremdarástand sem er hjá reykvískum skólabörnum og fjölskyldum þeirra."

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica