Vel heppnaður aðalfundur í Norðausturkjördæmi
Laugardaginn 13. nóvember sl. hélt kjördæmisráð VG í Norðausturkjördæmi aðalfund sinn í Mývatnssveit. Fundurinn var vel sóttur og fjöldi ályktana samþykktur í fundarlok. Valgerður Jónsdóttir var endurkjörin formaður svo og öll stjórn kjördæmisráðsins. Hér á eftir fara ályktanir fundarins:
?Ályktun um umhverfis- og náttúruvernd
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi, haldinn í Mývatnssveit laugardaginn 13. nóvember, fagnar þverpólitískum stuðningi á bak við tillögu til þingsályktunar um friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum. Fundurinn skorar á Alþingi að ljúka umfjöllun málsins á yfirstandandi þingi og samþykkja tillöguna. Einnig lýsir fundurinn yfir eindregnum stuðningi við tillögur nefndar um stofnun þjóðgarðs eða verndarsvæðis norðan Vatnajökuls og hvetur til þess að unnið verði af fullum krafti að þeim áformum.
Mikilvægt er að vinnu við gerð Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma verði lokið og niðurstöðurnar gerðar lögformlegar og bindandi hvað varðar frekari beislun orkunnar. Jafnan verði valdir í framtíðinni þeir virkjunarkostir sem minnst neikvæð umhverfisáhrif hafa í för með sér og horfið með öllu frá hugmyndum um þá sem lakast koma út. Mótun sjálfbærrar orkustefnu þarf að fylgja í beinu framhaldi af gerð rammaáætlunarinnar. Þar til ofangreindri vinnu hefur verið lokið eru engar forsendur til ákvarðanatöku um frekari stórvirkjanir, allra síst ef þeim fylgja mikil náttúruspjöll og orkuna á að selja til mengandi stóriðju á útsöluverði.
Ályktun um atvinnumál
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi fagnar því að vænlegar horfir með fjármögnun kísilduftverksmiðju í Mývatnssveit. Fundurinn styður áform um byggingu verksmiðjunnar heils hugar að því tilskildu að engin óafturkræf umhverfisáhrif fylgi rekstri verksmiðjunnar. Fundurinn lýsir sömuleiðis ánægju með vinnu að því að reisa álþynnuverksmiðju á Akureyri. Minni og meðalstór iðjuver, byggð á þekkingu og hugviti, sem ekki valda mengun og umhverfisspjöllum og falla vel að aðstæðum viðkomandi byggðarlaga, er það sem leggja ber áherslu á. Ef um umtalsverða orkunotkun er að ræða ber að leita leiða til að nýta orkuna sem næst upprunastað, svo halda megi línulögnum og öllu öðru raski í lágmarki. Fundurinn leggur áherslu á að fjölbreytni verði höfð að leiðarljósi við alla atvinnuuppbyggingu og hvetur til áframhaldandi vinnu að öflugri ferðaþjónustu, hefðbundinni og heilsutengdri, í kjördæminu.
Ályktun um samgöngumál
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi mótmælir yfirstandandi og áframhaldandi niðurskurði á framkvæmdafé til vegagerðar. Niðurskurður á vegafé sem nemur tæpum sex milljörðum króna á þremur árum, þ.e. á árunum 2004-2006, er þungt högg greitt þeim byggðarlögum sem enn bíða þess að komast í forsvaranlegt nútíma vegasamband. Fundurinn minnir á nauðsyn þess að bæta samgöngur í þágu eflingar ferðaþjónustunnar, mestu vaxtargreinar íslensks atvinnulífs um þessar mundir.
Ályktun um fjarskiptamál
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi krefst þess að tafarlaust verði gerðar úrbætur í fjarskiptamálum á landsbyggðinni. Sérstaklega þarf að gera átak í að bæta möguleika íbúa landsbyggðarinnar á háhraðatengingum og þétta GSM kerfið. Til þessa á að beita afli Landsímans sem opinbers þjónustufyrirtækis og falla frá öllum hugmyndum um einkavæðingu.
Ályktun um stöðu sveitarfélaga
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi krefst þess að þegar í stað verði gripið til raunhæfra og fullnægjandi aðgerða til að rétta við fjárhag sveitarfélaganna. Áður en frekari verkefnaflutningur frá ríki til sveitarfélaga er tekinn til skoðunar verður að koma fjárhag þeirra í viðunandi horf með hliðsjón af núverandi verkefnum. Nægir þar að nefna tillögur menntamálaráðherra um styttingu framhaldsskóla þar sem gert er ráð fyrir flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Ljóst er að sveitarfélögin vantar tekjur upp á a.m.k. 3-5 milljarða króna miðað við núverandi verkefni. Ef stjórnvöld telja svigrúm til skattalækkana er fráleitt að neita á sama tíma að horfast í augu við staðreyndir og nota tækifærið til að bæta afkomu sveitarfélaganna.
Ályktun um utanríkismál
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi vekur athygli á þeim hörmungum sem innrásarstríð hinna 30 vígfúsu ríkja hefur leitt yfir almenning í Írak þar sem nú er talið að yfir 100.000 óbreyttir borgarar hafi þegar týnt lífi. Fundurinn ítrekar þá kröfu að íslensk stjórnvöld hverfi frá stuðningi við hernaðinn í Írak og geri hreint fyrir sínum dyrum varðandi aðdraganda þess að ríkisstjórnin ákvað að styðja innrásina í nafni Íslands. Fundurinn varar eindregið við þeirri tilhneigingu ríkisstjórnarinnar að taka síaukinn þátt í framkvæmd bandarískrar utanríkisstefnu í fjarlægum heimshlutum, m.a. með því að setja íslenska ríkisborgara undir vopn, þjálfa þá til hernaðar og senda þá til átakasvæða.
Ályktun um friðlýsingu Íslands og íslenskrar lögsögu
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi hvetur til þess að Ísland og íslensk efnahagslögsaga verði friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum og umferð kjarnorkuknúinna farartækja. Nýlegar heræfingar rússneskra herskipa þar sem kjarnorkuknúið skip og skip sem borið geta kjarnorkuvopn lónuðu skammt utan við 12 mílna landhelgi Íslands gefa tilefni til harðra viðbragða af Íslands hálfu. Óþolandi er að fengsælum fiskimiðum og jafnvel öllu lífríki sjávar við Ísland sé stefnt í hættu með slíkum æfingum.
Ályktun um uppkaup á bújörðum
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi varar við þeirri hnignun byggðar og búsetu sem hlýst af því þegar einkahlutafélög kaupa upp kvóta og jarðir í sveitum landsins. Í ljósi þessa er brýnt að setja lög um búsetutengda styrki og grænar vísitölur þar sem jafnt yrði hugað að stuðningi við núverandi búskap sem fjölbreyttari búskaparhætti. Enn fremur krefst fundurinn þess að sölu ríkisjarða verði þegar í stað hætt en í stað þess stuðlað að búsetu á þeim.
Ályktun um kjarabaráttu grunnskólakennara
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi telur samstöðu kennara við erfiðar aðstæður í löngu verkfalli öðrum stéttarfélögum hvatningu á tímum þegar markvisst er unnið að því að brjóta niður samstöðu launþega. Fundurinn mótmælir harðlega lagasetningu ríkisstjórnarinnar á verkfall grunnskólakennara. Nauðsynlegt er að sveitarfélögin í landinu fái auknar tekjur til að greiða starfsfólki sínu góð laun svo komist verði hjá ófremdarástandi á borð við það sem hefur ríkt undanfarnar sjö vikur. Fundurinn lýsir eindregnum stuðningi við tillögur þingflokks VG um að þær tekjur sem ríkið myndi verða af vegna fyrirhugaðra skattalækkana verði fluttar yfir til sveitarfélaganna.?

