Fréttir
Flokksráðsfundur í Reykjavík 20.-21. nóvember
Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs kemur saman til fundar á Grand Hótel í Reykjavík um helgina. Þar verður sérstaklega fjallað um menntamál og heilbrigðismál ásamt stjórnmálum líðandi stundar. Almennar umræður hefjast klukkan 13 á laugardag og verður sá hluti fundarins opinn öllum félögum og stuðningsmönnum VG.
Dagskráin er birt í heild undir liðnum Á döfinni hér á vefnum.

