Fréttir

Vel heppnaður fundur á Akureyri

15.1.2007

Fimmtudagskvöldið 11. janúar s.l. stóð VG fyrir almennum stjórnmálafundi að Hótel KEA á Akureyri. Um 40 manns sóttu fundinn. Ávörp fluttu alþingismennirnir Steingrímur J Sigfússon og Þuríður Backman og Dýrleif Skjóldal sem skipar 4. sætið á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi.  Að þeim loknum urðu fjörugar umræður sem stóðu langt fram á kvöld. Fundurinn einkenndist af miklum baráttuhug og bjartsýni á gengi flokksins í komandi alþingiskosningum.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica