Daglegar fréttir frá Palestínu
Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG, er á ferð um Palestínu þessa dagana í boði þarlendra verkalýðssamtaka. Ögmundur skrifar daglega pistla á heimasíðu sína, www.ogmundur.is um upplifunina af ástandinu í þessu hernumda landi. Nýjasta greinin nefnist ?Gettó í Palestínu? og fjallar um eitt sýnishorn af aðskilnaðarstefnu Ísraelsstjórnar, þorpið Qalgilya sem er nær umlukt múrum og gaddavírsgirðingum. Greinina má nálgast hér. Áhugafólk um þessi mál er hvatt til að fylgjast áfram með síðu Ögmundar sem nú er á leið til Gólan-hæðanna sem Ísrael hertók af Sýrlendingum árið 1967.

