Stofnun starfshóps um stjórnarskrána
Fyrsti fundur nefndar um endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins Íslands var í gær, mánudaginn 24. janúar. Í henni sitja fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi, en að auki starfar nefnd sérfræðinga að málinu sem ætlað er að veita stjórnarskrárnefndinni upplýsingar og faglega ráðgjöf. Fulltrúi VG í nefndinni er Steingrímur J. Sigfússon.
Mikill áhugi er í samfélaginu á þessu starfi og mikilvægt að sem flestum gefist tækifæri til að leggja málinu lið. Vinstri Græn ætla að leggja sitt af mörkum til að gera almenningi kleift að koma að málinu og buðu m.a. til opins fundar um stjórnarskrármálin að kvöldi mánudagsins 24. janúar sl. Þar opnuðu Ragnar Arnalds og Steingrímur J. Sigfússon umræður um stjórnarskrána og endurskoðun hennar og þar var m.a. rætt að stofnaður yrði starfshópur sem ynni að málinu með Steingrími og stæði fyrir sem víðtækustum umræðum innan flokksins.
Áhugasamt fólk getur gefið sig fram við starfsfólk VG í tölvupósti vg@vg.iseða hringt í 552-8872.

