Fréttir

Ályktanir flokksráðsfundar 19. febrúar

21.2.2005

Á nýafstöðnum flokksráðsfundi voru samþykktar fjórar ályktanir og fara þær hér á eftir.

?Ályktun um fjarskiptamál

Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs hvetur til þess að grunnnet Landsímans, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar verði sameinuð í eitt gagnaflutningsnet í eigu ríkis og sveitarfélaga. Fundurinn telur mikilvægt að slíkt fjarskiptanet þjóni öllum landsmönnum og verði aðgengilegt öllum aðilum í fjarskiptaþjónustu en einkavæðing Landsímans með grunnnetinu muni leiða af sér mismunum á þessu sviði og stórkostlega offjárfestingu sem almenningur þurfi á endanum að borga.

Fundurinn bendir á Landsíminn hefur skilað milljörðum í ríkissjóð á undanförnum árum og fyrirsjáanlegt að svo verði áfram ef stofnunin verður í almannaeigu. Þannig mætti fjármagna byggingu hátæknisjúkrahúss eða önnur þjóðþrifaverkefni með arðinum einum saman.

Ályktun um loftslagsmál

Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs fagnar þeim áfanga sem náðist í sameiginlegri baráttu þjóða heims gegn loftslagsbreytingum þegar Kyoto-bókunin varð að alþjóðalögum 16. febrúar síðastliðinn. Rétt er að vekja athygli á því að afleiðingarnar af skaðlegri hlýnun lofthjúpsins verða verstar fyrir fátækustu heimshlutana þar sem hætta er á stórkostlegum vatnsskorti, illvígum þurrkum og aukinni útbreiðslu farsótta. Skoða verður ábyrgð auðugra iðnríkja á borð við Ísland í því ljósi og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við það. Sú staðreynd að á sama tíma einblína ráðherrar á meint tækifæri sem hlýnun á norðurslóðum hafi í för með sér fyrir Ísland, undirstrikar að ríkisstjórnin er ófær um að taka á þessu alvarlega máli á viðeigandi hátt.

Ályktun um skerðingu náms til stúdentsprófs

Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs furðar sig á þeim hugmyndum menntamálaráðherra að skerða nám til stúdentsprófs í því skyni að lækka stúdentsprófsaldur. Ljóst er að í nútímalegu skólastarfi skiptir sveigjanleiki mestu þannig að nemendum sé kleift að ná stúdentsprófi á þeim tíma sem þeir þurfa til þess. Því telur fundurinn mun vænlegra að gera mörk skólastiga sveigjanlegri en að skera niður nám í framhaldsskóla og fækka þar einingum. Tillögur ráðherra lykta af sparnaði fremur en einlægum vilja til að bæta íslenskt skólakerfi.

Ályktun um þjónustutilskipun Evrópusambandsins

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs haldinn í Reykjavík 19. febrúar 2005 varar alvarlega við þjónustutilskipun Evrópusambandsins sem nú er í burðarliðnum. Tilskipuninni er ætlað að stuðla að markaðsvæðingu velferðarþjónustunnar og undirboðum á vinnumarkaði. Tilskipunin er því tilræði við launafólk og velferðarsamfélagið.

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs krefst þess að íslensk stjórnvöld leggi sitt af mörkum til að hnekkja þessari tilskipun og gera stjórnarnefnd Evrópusambandsins grein fyrir því að Íslendingar muni beita neitunarvaldi innan EES ef Evrópusambandið geri alvöru úr því að tilskipunin verði innleidd á hinu evrópska efnahagssvæði.?

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica