Fréttir

Bókun VG í Borgarráði vegna Byrgisins

18.1.2007

Eftirfarandi bókun var lögð fram í borgarráði Reykjavíkurborgar á fundi þess fyrr í dag:

 

Í ljósi fyrirliggjandi skýrslu og umræðna og umfjöllunar um málefni Byrgisins að undanförnu er ljóst að öll stjórnvöld, hvort sem er ríki eða sveitarfélög þurfa að endurmeta kröfur þær sem gerðar eru til starfsemi sem ætluð er til að þjóna þörfum umrædds hóps. Reykjavíkurborg þarf þar að gæta sérstaklega að miklum faglegum kröfum, eftirliti með nýtingu fjármuna og síðast en ekki síst því að gefa ekki afslátt af mannréttindum þeirra sem þjónustunnar njóta.

 

Borgarfulltrúar Vinstri grænna lýsa furðu sinni á því andvaraleysi sem ríkt hefur um hag vímuefnasjúklinga af hálfu hins opinbera undanfarin ár. VG telur einboðið að Landlæknisembættið rannsaki með hvaða hætti meðferðar- og umönnunarstarf hefur verið framkvæmt á meðferðarstofnunum undanfarin ár. Þá vekur athygli hversu seint og illa félagsmálaráðherra brást við þegar ljóst var að í óefni stefndi hjá Byrginu og hversu miklu virðingarleysi sjúklingar þar hafa mætt.  Vikum saman voru málin látin dankast þar til allt var komið í óefni og þá fyrst gripið í taumana.  Nær hefði verið að tilnefna strax utanaðkomandi tilsjónarmann með rekstri Byrgisins og kappkosta að sinna sjúklingum sem til staðar voru.  Þannig  hefði vistmönnum verið forðað frá því að lenda á vergangi og tími unnist til að fara yfir málið af yfirvegun og leita samstarfsaðila á faglegum forsendum. 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica