Fréttir

Flokkshagsmunir látnir ráða

10.3.2005

Vinnubrögðin við ráðningu fréttastjóra Útvarps hafa að vonum vakið furðu og hneykslun almennings. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem það er harðlega átalið að þröngir flokkshagsmunir skuli látnir ráða ofar almannahag. Yfirlýsing þingflokksins fer hér á eftir:   

 

"Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs mótmælir ófagmannlegum vinnubrögðum við ráðningu fréttastjóra Útvarps. Það er í hæsta máta ámælisvert að meirihluti útvarpsráðs og síðan útvarpsstjóri skuli virða að vettugi faglegt mat og óskir forsvarsmanna fréttadeildar Ríkisútvarpsins. Enginn fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs situr í útvarpsráði og gat því ekki tekið þátt í afgreiðslu málsins. Hjáseta minnihluta útvarpsráðs er illskiljanleg og hefði verið nær að minnihlutafulltrúar hefðu lagt faglegum vinnubrögðum við ráðninguna lið með því að styðja þann umsækjanda sem þeir töldu hæfastan af þeim sem mælt hafði verið með.

 

Vinnubrögð útvarpsráðs og útvarpsstjóra eru Ríkisútvarpinu ósamboðin og grafa undan tiltrú á þessa mikilvægu stofnun í þjóðareigu. Þetta mál sýnir þjóðinni eina ferðina enn að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hika ekki við að láta lýðræðisleg og fagleg vinnubrögð lönd og leið þegar meintir flokkshagsmunir og helmingaskipti þeirra í milli krefjast. Það verður að gera þá kröfu til pólitískt kjörinna fulltrúa að þeir rísi yfir þrönga flokkshagsmuni þegar þeim er falið að gæta almannahags."

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica