Eldarnir loga, en kann Halldór á fiðlu?
Eins og sagt er frá í frétt hér neðar á síðunni lagði þingflokkur Vinstri-Grænna nýlega fram tillögu til þingsályktunar um aðgerðir í efnahagsmálum með það að markmiði að tryggja efnahagslegan stöðugleika. Fjölmargir sem standa fyrir atvinnurekstri eða eru í forsvari í fjármálaheiminum hafa lýst áhyggjum sínum af gangi mála sem leggst þungt á margar greinar atvinnulífsins og því brýnt að grípa til aðgerða. Einn er þó ekki þjakaður af áhyggjum, eins og fram kom á ársfundi Seðlabankans fyrir nokkrum dögum, og það er sjálfur forsætisráðherra landsins, Halldór Ásgrímsson. Steingrímur J. Sigfússon sat ársfundinn sem varð honum tilefni greinar sem birt er hér í greinahólfi undir yfirskriftinni "Eldarnir loga, en kann Halldór á fiðlu?"

