Fréttir

Menningarstefna í mótun

14.2.2012

Katrín Jakobsdóttir
73BW8315

Í Mennta- og menningarmálaráðuneytinu er unnið er að ritun menningarstefnu stjórnvalda sem áætlað er að verði lögð fram sem þingsályktunartillaga á haustþingi. Lengi hefur verið kallað eftir heildstæðri stefnumótun ríkisins í menningarmálum en viðkvæðið hefur þá oft verið að stefna stjórnvalda birtist í lagasetningu, fjárlögum, reglugerðum og ýmsum öðrum ákvörðunum á sviði menningarmála. Slík rök hafa þó ekki slegið á óskir um mótaða stefnu, en í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er nefnt að vinna eigi að mótun hennar.

Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar við undirbúning stefnunnar á undanförnum misserum en nú eru skrif hafin og vinnur starfshópur innan ráðuneytisins að drögum. Stefnt er að samráði um stefnuna í framhaldinu en ýmis hugmyndavinna félagasamtaka liggur til grundvallar vinnunni. Þar má einkum nefna niðurstöður ráðstefnunnar Menningarlandið árið 2010 þar sem mótun menningarstefnu var rædd, samþykktir Bandalags íslenskra listamanna o.s.frv. Einnig er horft til nágrannalandanna.

Menningarstefnunni er ætlað að skýra aðkomu ríkisins að menningarmálum, með það fyrir augum að benda á aðferðir og möguleika til að bæta og efla þá starfsemi. Stefnt er að því að stefnan verði hvatning til þeirra aðila er vinna á sviði menningar í landinu um að vanda til verka og horfa til framtíðar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica