Fréttir

Ætlar ríkisstjórnin að upplýsa um fjármálatengsl ráðherra?

20.4.2005

Í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag beindi Ögmundur þeirri spurningu til Halldórs Ásgrímssonar hvort ríkisstjórnin væri reiðubúin til þess að láta birta opinberlega yfirlit yfir fjárhagsleg og stjórnunarleg tengsl ráðherra við fyrirtæki og sjóði á sambærilegan hátt og gert er í Danmörku. Í svari sínu sagði Halldór að reglurnar í Danmörku hefðu verið settar í kjölfar hneykslismála þar í landi og var honum þá bent á að slík tilefni skorti heldur ekki hér á landi. Margir tóku þátt í umræðunni og sitthvað athyglisvert kom fram sem hægt verður að lesa fljótlega á vef Alþingis. Mál þetta vakti athygli fjölmiðla sem hafa margir fjallað um það í dag. Viðbrögð Ögmundar koma fram á heimasíðu hans á slóðinni http://www.ogmundur.is/news.asp?id=657&news_ID=2155&type=one 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica