Fréttir

VG kaupir húsnæði á Akureyri

21.4.2005

Þau tíðindi hafa nýlega orðið að Vinstrihreyfingin - grænt framboð réðist í kaup á húsnæði fyrir starfsemi VG á Akureyri og í Norðausturkjördæmi. Svæðisfélag VG á Akureyri og nágrenni hefur frá upphafi haldið uppi virkri starfsemi við erfiðar aðstæður þar sem það hefur verið á hrakhólum með húsnæði. Fyrir nokkru bauðst félaginu til kaups húsnæði á sérlega góðum stað í Hafnarstræti 98 og sá þá fram á að geta nýtt þá aðstöðu til framtíðar fyrir starfsemi svæðisfélagsins, kjördæmisins og flokksins eftir þörfum. Mun húsnæðið m.a. nýtast sem kosningaskrifstofa í sveitarstjórna- og alþingiskosningum.

 

Þrátt fyrir að enn séu nokkuð þungar greiðslur af láni vegna flokksmiðstöðvarinnar í Suðurgötu 3, Reykjavík, og enn talsvert óunnið af nauðsynlegum endurbótum á því húsnæði var það einróma niðurstaða flokksstjórnar að fjárfesta í þessari ágætu aðstöðu í Hafnarstræti 98 og greiða af því næstu árin, en rekstur, viðhald og viðgerðir verða í höndum félaganna á Akureyri og nágrenni. Stefnt er að formlegri opnun húsnæðisins 1. maí nk.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica