Fundur Evg um Sigurð Þórarinsson - myndir
Það voru hátt í 100 manns á fundi Eldri vinstri grænna í Stangarhyl 4, 1. febrúar s.l. Dagskráin var helguð minningu Sigurðar Þórarinssonar, jarðfræðings, náttúruverndarmanns og vísnaskálds, en 8. janúar s.l. voru liðin 100 ár frá fæðingu hans.

Hjörleifur Guttormsson stiklaði í máli og myndum á ýmsu sem varðaði störf Sigurðar. Guðrún Hallgrímsdóttir sem stýrði fundinum er hér fremst t.h.

Sigrún Helgadóttir líffræðingur fjallaði um störf Sigurðar sem brautryðjanda í umhverfisvernd.

Sönghópurinn Jöklabræður voru gestir fundarins. Hér sjást nokkrir þeirra hlýða á erindin í upphafi fundar.
Meðal gesta á fundinum voru líka systkinin Sven og Snjólaug börn Sigurðar og Ingu.

Páll Einarsson jarðfræðingur kynnti sönghópinn Jöklabræður. Við hlið hans er Halldór Ólafsson sem lengi var samverkamaður Sigurðar á ferðalögum hans. Halldór og Páll hafa í tómstundum sínum safnað saman kveðskap Sigurðar og lögunum sem hann orti undir. Þetta safn kom nú að góðum notum.

Sönghópurinn Jöklabræður og meðleikarar. Hópurinn kom fyrst fram á Vetrarmóti norrænna jarðfræðinga sem haldið var í Hörpu 8.-12. jan. sl.

Söngvarnir sem Jöklabræður sungu voru í útsettningu Páls Einarssonar jarðfræðings. Páll lék á bassa og sonur hans, Magnús, á klarínettu.

Í forgrunnni Reynir Jónasson á harmonikku og Björgvin Gíslason á gítar. Þeir hafa um árabil skemmt fólki á samkomum Eldri vinstri grænna.

Rúnar Einarsson fór með söngvísuna Andvökunótt á Ægissíðu.

Halldór Ólafsson tók sönginn, Þetta yndælis fyllirí, sem Sigurður orti er hann var við nám í Stokkhólmi 1944.

Gunnar Guttormsson raulaði sönginn Nína gullinhár. Í lokin sungu svo allir viðstaddir Vorkvöld í Reykjavík og Betr' er á fjöllum.

Myndir: Gunnar Guttormsson og Guðrún Hallgrímsdóttir.

