Breytingar í starfsliði VG
Á næstunni verða nokkrar breytingar í starfsliði VG þar sem undirrituð hættir innan tíðar sem framkvæmdastjóri flokks og þingflokks eftir hálft fjórða ár í því starfi. Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur nú ákveðið að ráða Svandísi Svavarsdóttur í minn stað og kemur hún til liðs um miðjan maímánuð.
Við væntum góðs af Svandísi sem er m.a. kunn af starfi sínu sem drífandi formaður VGR síðustu tæp 2 árin. Við munum starfa saman til að byrja með, enda margt framundan, undirbúningur landsfundar, sumarferðar, flokksráðsfundar, ráðstefnu um sveitarstjórnarmál o. fl., en að loknum sumarleyfum í júlí tekur Svandís við framkvæmdastjórninni.
Steinþór Heiðarsson, sem starfað hefur með okkur í vetur, lætur af sínu starfi í lok þessa mánaðar og blasir augljóslega við þörf öflugs liðsauka ekki síðar en á haustmánuðum vegna alls þess sem framundan er í starfi VG.

