Sjávarútvegsmál í forgrunni
„Fyrst var farið yfir stöðuna eins og hún er og reynt að gera grein fyrir þeim mikla árangri sem hefur náðst,“ segir Þráinn Bertelsson um fundi þingmanna með íbúum á Suðurnesjum síðastliðinn laugardag og bætir við að næst hafi verið rætt um verkefnin framundan. „Þetta eru sjávarpláss og þá vakti mesta eftirvæntingu og umræðu nýtt fiskveiðistjórnunarfrumvarp sem er í smíðum og mun koma fram ekki seinna en um mánaðamótin febrúar – mars, til að hægt sé að afgreiða það og ný fiskveiðistjórnunarlög geti tekið gildi 1. September.“
Ásamt umræðum um stjórn fiskveiða voru umræður um atvinnumál fyrirferðarmiklar á fundunum, meðal annars varðandi skapandi greinar og nýsköpun auk umræðna um stöðu HS orku og málefni tengd henni. Þá voru fundarmönnum hugleikin málefni er varða skuldir heimilanna og aðgerðir í þeim efnum.
Þráinn segir ánægjulegt að hitta fólk og að hann hafi fundið fyrir þéttum stuðningi við stjórnina þó fáar konur hefðu verið í hópi fundargesta.
Næstu fundir þingmanna verða í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík á laugardag.


