Fréttir

Gleðilegt sumar!

21.4.2005

Sumarkoman er alltaf jafn mikið fagnaðarefni hvernig sem veðurguðirnir haga sér. Öll höfum við sjálfsagt upplifað rigningu og rok eða jafnvel snjókomu á sumardaginn fyrsta og börnin hafa spurt vonsvikin og hríðskjálfandi í sumarfötunum sínum hvort sumarið yrði alltaf svona. Einhvern veginn finnst manni sem þannig hafi það verið oftar en ekki á þessum séríslenska og hjartfólgna degi. Í þetta sinn hafa veðurguðirnir hins vegar verið ljúfir og kátir víðast hvar á landinu, sunnanvindur blásið um kinn og farfuglarnir, sem streymt hafa hópum saman til landsins að undanförnu, fyllt loftið af gleði og söng.

 

Heimasíða VG þakkar lesendum sínum fyrir veturinn og óskar öllum góðs og gleðilegs sumars.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica