Hitamálin atvinna og lífsskilyrði
„Það kemur alltaf í ljós þegar fundað er með félögum að fólk vill oftast að ræða annað en hitamálin við Austurvöll,“ segir Björn Valur Gíslason formaður þingflokks Vinstri grænna en eftir þingflokksfund í Borgarnesi í fyrradag voru haldnir opnir fundir bæði í Borgarnesi og Grundarfirði.
Svandís Svavarsdóttir, Ögmundur Jónasson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Auður Lilja Erlingsdóttir funduðu í Borgarnesi en þar fram umræður um fjölbreyttustu málefni, allt frá iðnaðarsalti til aðildar að Evrópusambandinu. Kom meðal annars fram í máli Svandísar að hún teldi Evrópusambandið ekki lausn við vanda nýrrar aldar. Þau vandamál væru til dæmis loftslagsmál, hlýnun jarðar, að vinna gegn fátækt í þriðja heiminum og brauðfæða jarðarbúa.
Í Grundarfirði voru um eða yfir 70 manns á fundi með Steingrími J. Sigfússyni, Birni Val og Lilju Rafney Magnúsdóttur. Björn Valur segir fundinn hafa verið líflegan og farið hafi verið vítt og breytt um sviðið, rætt meðal annars um raforku og menningarmál þó sjávarútvegsmálin hafi verið í forgrunni. „Við vorum hvött til að flýta vinnunni við nýja fiskveiðilöggjöf, fólk er orðið óþolinmótt að bíða eftir henni. Svo var hefðbundin umræða um strandveiðar, bæði með og á móti. Það eru þessi klassísku mál sem standa fólki nær, atvinnumál og lífsskilyrði,“ segir Björn Valur og bætir við: „Þetta var ánægjulegur fundur og vel heppnaður.“
Framundan eru fleiri fundir þingmanna um landið en boðað er til funda á Suðurnesjum laugardaginn 28. janúar næstkomandi.


