Úrbætur dómskerfisins ræddar
„Upphafið má rekja til þess að Innanríkisráðuneytið stóð siðastliðinn vetur fyrir mjög víðtæku samráði um meðferð nauðgunarmála í réttarvörslukerfinu og kallaði saman alla sem að þeim koma, lögreglu, saksóknara, dómara, neyðarmóttöku vegna naugðana, samtök þolenda og frjáls félagasamtök,“ segir Halla Gunnarsdóttir aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar Innanríkisráðherra um ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu sem fram fer í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð á morgun. „Eitt af því sem kom út úr þessu samráð var að þörf væri á aukinni umræðu og fræðslu um málaflokkinn og vonandi verður þessi ráðstefna upptaktur að frekari umræðu,“ segir hún.
Ásamt Innanríkisráðuneytinu standa að ráðstefnunni Lagadeild Háskóla Íslands, Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni og Evrópuráðið fyrir ráðstefnunni. Á ráðstefnunni verða bæði erlendir og innlendir fyrirlesarar og leitast verður við að leiða saman sjónarmið fræðasamfélagsins, réttarvörslukerfisins og frjálsra félagasamtaka sem fjalla um málaflokkinn en 190 manns hafa þegar skráð sig til þátttöku.
Ráðstefnan verður í þremur hlutum. Í fyrsta hluta verður fjallað um kynferðisbrot gegn börnum í tengslum við sáttmála Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun. Íslensk stjórnvöld undirrituðu sáttmálann 4. febrúar 2008 og fullgilding stendur nú fyrir dyrum. Í þessu samhengi verður sérstaklega fjallað um reglur Evrópuráðsins um barnvænt réttarumhverfi en þær voru útbúnar í tengslum við sáttmálann.
Í öðrum hluta verður fjallað um meðferð nauðgunarmála í réttarkerfinu út frá þverfaglegu sjónarhorni. Er þessi hluti sjálfstætt framhald af viðamiklu samráði sem innanríkisráðuneytið hefur staðið fyrir um meðferð nauðgunarmála.
Í þriðja hluta ráðstefnunnar verður boðið upp á þrjár málstofur með aðkomu fræðimanna, lögreglu, saksóknara, dómara, lögmanna og frjálsra félagasamtaka. Í þeirri fyrstu verður fjallað um samspil barnaverndarkerfisins og refsivörslukerfisins; í annarri verður rætt um rannsóknir og ákærur í nauðgunarmálum og í þeirri þriðju verður fjallað um trúverðugleika og sönnunarmat.
Nánar má lesa um ráðstefnuna á vef Innanríkisráðuneytisins:
http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/27766


