Dagur umhverfisins
Dagur umhverfisins er í dag og sannarlega við hæfi að Vinstri-Grænir fagni slíkum degi. Reyndar liggur það í hlutarins eðli að við viljum að hugsað sé um umhverfið ekki aðeins á þessum degi, heldur alla daga ársins og ekkert minna en það. En sérmerktir dagar gera vissulega sitt gagn til að vekja athygli og umræður um brýn málefni.
Dagurinn í dag er helgaður náttúruvernd og Katrín Jakobsdóttir, formaður umhverfisráðs Reykjavíkur og varaformaður VG, minnir okkur á það í grein í Morgunblaðinu að náttúruvernd á ekki aðeins við um ósnortin svæði, heldur eru einnig ýmis náttúruvætti í þéttbýlinu sem full ástæða er til að vernda. Greinin birtist í heild sinni hér til hliðar undir fyrirsögninni "Náttúruvernd í þéttbýli".

