Ályktanir sem vísað var til stjórnar af landsfundi
Á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs var tekin ákvörðun um að vísa eftirfarandi ályktunum til stjórnar
-
Erfðabreytt ræktun
-
Vistvænar samgöngur
-
Ályktun um ferðaþjónustu
-
Ályktun um atvinnustefnu
Að auki var ákveðið að senda skýrslu skipulagsnefndar VG til umfjöllunar í svæðisfélögum flokksins sem hefur þegar verið gert. Ályktun um þjóðnýtingu fjármálastarfssemi á Íslandi og fyrri hluta ályktunar um stöðu skuldara var vísað til málefnaþings um fjármálastarfssemi sem fyrirhugað er að halda í lok febrúar. Jafnframt var ákveðið var að setja á fót hóp um mótun lýðræðisstefnu VG sem hefur m.a. það hlutverk að taka fyrir þær tvær ályktanir sem lágu fyrir fundinum um lýðræðisstefnu og lýðræðisumbætur.
Á fundi stjórnar síðastaliðinn föstudag var farið yfir þessar fjórar ályktanir sem eftir standa. Niðurstaða var að samþykkja ályktun um vistvænar samgöngur og ályktun um ferðaþjónustu. Ályktun um erfðabreytta ræktun ákvað stjórn að vísa til þingflokks og í starf við mótun landbúnaðarstefnu VG. Ályktun um atvinnustefnu var ákveðið að fara betur yfir og mun niðurstaða úr þeirri vinnu verða birt þegar hún liggur fyrir.
Með því að velja lesa meira má sjá ályktanirnar tvær sem stjórn samþykkti.
Vistvænar samgöngur
Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs beinir því til innanríkisráðherra að endurskoða námskrá fyrir almenn ökuréttindi með það fyrir augum að auka áherslu á vistakstur.
Ályktun um ferðaþjónustu
Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að ráðast í þriggja ára markaðs- og kynningarátak á íslenskri ferðaþjónustu í samstarfi- og með þátttöku greinarinnar. Áframhaldandi markviss kynning á Íslandi sem áfangastað fyrir erlenda ferðamenn verður að taka mið af nýsamþykktri ferðamálaáætlun sem leggur áherslu á dreifingu ferðamanna um allt land og yfir allt árið, auknum rannsóknum, eflingu innviða og bættu aðgengi að nýjum áfangastöðum innanlands.
Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem hraðast getur aukið gjaldeyristekjur og fjölgað störfum án umfangsmikilla fjárfestinga. Landsfundur VG leggur áherslu á enn frekari þróun á framboði vara og þjónustu innan menningar- og heilsutengdrar ferðaþjónustu. Á grunni vandaðrar úttektar á auðlindum greinarinnar er hægt að stórefla nýsköpun á öllum sviðum og tryggja framsækna stefnumótun og sýn á forsendum heimamanna.
Landsfundurinn leggur þunga áherslu á markvissa uppbyggingu nýrra áfangastaða sem dregið getur úr ágangi á vinsælustu svæðunum. Að lokum leggur landsfundur VG áherslu á að öll frekari uppbygging ferðaþjónustunnar og nýting auðlinda til lands og sjávar taki mið af forsendum sjálfbærrar nýtingar með virðingu fyrir landinu, sögu okkar og menningu.

