Fréttir

Breytingar á ríkisstjórn

10.1.2012

Steingrímur J. Sigfússon tók við embætti efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þann 31. desember síðastliðinn. Þá létu af störfum Jón Bjarnason sem áður gegndi embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra. Steingrímur lét þá af embætti fjármálaráðherra en við tók Oddný G. Harðardóttir.

Þessar breytingar á stjórnarráðinu eru í samræmi við samstarfsyfirlýsingu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingar frá því í maí 2009. Þar segir:

„Nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti tekur til allra atvinnugreina (utan opinbera geirans og fjármálamarkaðarins), nýsköpunar og þróunar innan þeirra. Þar verða teknar ákvarðanir um nýtingu auðlinda á grundvelli rannsókna og ráðgjafar frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Nýtt umhverfis- og auðlindaráðuneyti fær auk þeirra verkefna sem fyrir eru lykilhlutverk varðandi rannsóknir, nýtingarstefnu, ráðgjöf og verndun á sviði auðlindamála. Þangað flyst ennfremur umsýsla Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.“

Ráðherrar í ríkisstjórn eru nú: Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra, Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica