Fjármál þingmanna og stjórnmálaflokka
Öðru hverju blossa upp heitar umræður um fjármál stjórnmálaflokka og ekki síður stjórnmálamanna. Vinstrihreyfingin ? grænt framboð og þingmenn flokksins hafa engu að leyna í því efni, bókhald flokksins hefur frá upphafi legið fyrir endurskoðað af löggiltum endurskoðendum og upplýsingar um fjármál þingmanna eru birt á heimasíðu flokksins. Það er að sjálfsögðu grundvallarkrafa að allir stjórnmálaflokkarnir opni bókhald sitt svo að hægt verði að ganga úr skugga um hugsanleg tengsl þeirra við fyrirtæki og fjármagnseigendur. Það er hið eina sem getur eytt þeirri tortryggni sem ríkir í garð stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna.Vinstri-Grænir hrærðu heldur betur upp í þessum málum þegar Ögmundur Jónasson lagði fram fyrirspurn í byrjun mars sl. um það hvort ríkisstjórnin væri reiðubúin að láta birta opinberlega yfirlit yfir fjárhagsleg og stjórnunarleg tengsl ráðherra við fyrirtæki og sjóði á sambærilegan hátt og gert er í Danmörku. Umræðan í tilefni fyrirspurnarinnar fór þó ekki fram fyrr en 20. apríl sl. og þar svaraði forsætisráðherra því til að hann teldi sjálfsagt að þetta yrði skoðað í forsætisnefnd þingsins. Fjöldi þingmanna tók þátt í umræðunni og m.a. lýstu þingmenn Framsóknarflokksins þar yfir að þeir mundu birta upplýsingar um fjárhagsleg málefni sín á vefsíðu flokksins og vöktu þau ummæli mikla athygli fjölmiðla og almennings. Framtak Framsóknarmanna er vert eftirbreytni og hafa þingmenn Vinstri-Grænna nú gert slíkt hið sama eins og hægt er að kynna sér hér á vefnum undir liðnum "Þingmenn".
En þótt þetta sé gott og blessað er síður en svo nóg að gert. Aðalatriðið er að fjármál flokkanna sjálfra liggi ljós fyrir og gefi ekki tilefni til tortryggni og gruns um óeðlileg hagsmunatengsl. Það verður að gera þá kröfu til stjórnmálaflokkanna að þeir opni bókhald sitt og upplýsi um fjármál sín. Það er hið eina rétta.

