Pólitísk verkalýðshreyfing ? lifandi hreyfing
"Sagan kennir okkur að einmitt skipulögð, öflug og samstillt barátta launamanna hefur átt stóran þátt í að skapa þau vestrænu, ekki síst norrænu, velferðarsamfélög og þjóðfélagsgerð sem við þekkjum og göngum út frá sem vísri í dag. Hollt er og að minnast þess hvernig almannatryggingar eru til komnar, atvinnuleysisbætur, félagslegar ráðstafanir í húsnæðismálum, launaðir veikindadagar, réttur til að vera frá vinnu vegna veikinda barna og svo framvegis. Ekkert af þessu kom fyrirhafnarlaust. Margar slíkar umbætur í velferðarmálum kostuðu harðvítuga baráttu og verkföll. Og ekkert af þessu er heldur sjálfgefið um aldur og ævi, það þarf líka vakandi baráttu fyrir, og stanslausa varðstöðu um, það sem áunnist hefur."
Þannig segir m.a. í greininni "Pólitísk verkalýðshreyfing ? lifandi hreyfing" eftir Steingrím J. Sigfússon, sem birtist hér í greinahólfi síðunnar. Greinin er að sjálfsögðu birt í tilefni af baráttudegi verkafólks 1. maí.

