Fréttir

Samþykktar ályktanir flokksráðsfundar 19.-20. janúar

20.1.2007

Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á fjölmennum flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík 19.-20. janúar.

 

Ályktað gegn fyrirhuguðum stóriðjuframkvæmdum og virkjanaframkvæmdum í þeirra þágu
Í ljósi þeirra víðtæku afleiðinga sem stóriðjustefna undanfarinna ára hefur haft fyrir landið allt og íbúa þess, er ljóst að afdrifaríkar ákvarðanir á þessu sviði geta ekki verið einkamál einstakra sveitarfélaga. Stóriðjustefnan og virkjanaframkvæmdir í þágu stóriðju eru á kjörseðlum landsmanna 12. maí.

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs telur engan veginn nægjanlegt að láta aðeins kjósa um afmarkaða skipulagsþætti s.s. deiliskipulag lands í einstaka sveitarfélögum eins og nú stendur til í Hafnarfirði vegna álbræðslunnar í Straumsvík. 

Flokksráðsfundurinn leggst gegn fyrirhugaðri stækkun álbræðslunnar í Straumsvík, áformum um byggingu álbræðslu í Helguvík og við Húsavík, virkjana í neðrihluta Þjórsár, Jökulsánna í Skagafirði, jarðvarmavirkjana á Reykjanesskaga, Hengilsvæðinu og Þingeyjarsýslum.

Ákvörðanir um byggingu og stækkun álbræðslu og virkjanaframkvæmdir í þágu stóriðju munu hafa veruleg áhrif á náttúru Íslands, umhverfi og efnahag um landið allt. Það er ekki einkamál sveitarfélagsins Hafnarfjarðar, Norðurþings, Reykjanesbæjar eða annarra að taka einhliða ákvörðun um virkjanakosti eða um nýtingu auðlinda fjarri sinni heimabyggð. Ákvarðanir sem binda hendur þjóðarinnar á öðrum sviðum, ógna stöðugleika efnahagslífsins og breyta náttúru, ásýnd og ímynd lands.

 

Ályktun um rannsókn á málefnum Byrgisins

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs haldinn í Reykjavík 19.-20. janúar 2007 telur óviðunandi að Ríkissaksóknari og Sýslumannsembættið á Selfossi hafi ekki brugðist þegar í stað við þeim ásökunum sem komu fram í sjónvarpsþætti í nóvember 2006, gegn fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins um meint kynferðis-samband hans við skjólstæðinga þess. Viðbrögðin vekja furðu, ekki síst í ljósi þess að stjórnvöld brugðust tafarlaust við ásökunum um fjármálamisferli. Það sýnir enn á ný skilningsleysi yfirvalda á alvarlegum afleiðingum kynferðisofbeldis og eðli þessara brota að öðru leyti. 

 

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs krefst þess að kærur á hendur fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins verði teknar alvarlega og rannsókn hraðað. Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs minnir Ríkissaksóknara og Sýslumannsembættið á Selfossi á að ákæruefnin eru mjög alvarleg. Kærurnar lúti að því að umsjónarmaður vistheimilisins hafi misnotað freklega aðstöðu sína og brotið í starfi gegn trúnaðarsambandi við skjólstæðinga sína. Sýslumaður verði að hafa í huga að kærurnar varða mannréttindi, friðhelgi einkalífs umræddra kvenna og kynfrelsi þeirra. Meint fjármálamisferli forstöðumanns Byrgisins er léttvægt í samanburði við framkomnar kærur um kynferðislegt ofbeldi.

 

 

Hvatt til samfélagslegrar ábyrgðar og fagmennsku
Vinstri græn lýsa furðu sinni á því andvaraleysi sem ríkt hefur af hálfu hins opinbera undanfarin ár um hag stórs hóps vímuefnaneytenda og geðsjúkra og minnir á samfélagslega ábyrgð í því efni. Um leið og skorin er niður fagleg þjónusta hafa þrjú ráðuneyti, öll undir stjórn Framsóknarflokksins, án gagnrýni og viðhlítandi eftirlits, látið opinbert fé renna til meðferðastarfs trúfélaga eða félaga tengdum þeim. Svipaða sögu er að segja um samsvarandi þjónustu í Reykjavík. 

 

Það vekur athygli hversu seint og illa félagsmálaráðherra brást við þegar ljóst var að í óefni stefndi hjá Byrginu og hversu miklu virðingarleysi vistmenn þar hafa mætt.  Vikum saman voru málin látin reka á reiðanum þar til allt var komið í óefni og þá fyrst gripið í taumana.  Nær hefði verið að tilnefna strax utanaðkomandi fagaðila til tilsjónar með rekstri Byrgisins og kappkosta að sinna vistmönnum sem til staðar voru.  Þannig  hefði vistmönnum verið forðað frá því að lenda á vergangi og tími unnist til að fara yfir málið af yfirvegun og leita samstarfsaðila á faglegum forsendum. 

 

Flokksráð Vinstri grænna  telur einboðið að Landlæknisembættið rannsaki með hvaða hætti meðferðar- og umönnunarstarf hefur verið framkvæmt á meðferðarstofnunum undanfarin ár og verði sú rannsókn ekki einskorðuð við Byrgið eitt.

 

Brýnt er að stjórnvöld, hvort sem er ríki eða sveitarfélög, endurmeti þær kröfur sem gerðar eru til meðferðarstofnana og annarra úrræða fyrir geðsjúka og vímuefnaneytendur. Gera þarf ríkar faglegar kröfur, eftirlit með nýtingu fjármuna þarf að vera gott og síðast en ekki síst má það aldrei gerast að afsláttur sé veittur á mannréttindum þeirra sem þjónustunnar njóta. Þá er það grundvallaratriði að þeir aðilar sem veita sjúku fólki meðferð á vegum hins opinbera séu óvilhallir í bæði stjórnmálalegu og trúarlegu tilliti.

 

 

 

Ályktun um framboð til KSÍ
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, haldinn 19.-20. janúar 2007 fagnar því að kona hafi í fyrsta skipti boðið sig fram til formennsku í Knattspyrnusambandi Íslands.

 

Knattspyrna hefur fram til þessa verið eitt helsta vígi karlmennskunnar og innan knattspyrnusambandsins hefur ríkt óviðunandi misrétti milli karla og kvenna. Framboðið er til marks um að konur gera tilkall til þess að þeirra íþróttaiðkun sé jafnmikils metin og karla. Til þess þurfa konur að koma að ákvarðanatöku og stefnumótun innan íþróttahreyfingarinnar.

 

Þessum tímamótum í frelsisbaráttu kvenna fagnar flokksráðsfundur Vinstri grænna.

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica