Fréttir

Baráttudagur verkafólks 1. maí

29.4.2005

Sunnudaginn 1. maí minnumst við áralangrar baráttu verkafólks fyrir réttindum sínum og bættum kjörum. Vinstri-Grænir fjölmenna í baráttugöngur og á útifundi þar sem menn brýna hver annan til að halda vöku sinni, því baráttu fyrir mannréttindum og bættum kjörum lýkur ekki í bráð.

 

Vinstri-Grænir bjóða víða upp á kaffi og meðlæti og ekki síst samræður um málefni dagsins að loknum opinberum fundahöldum og fara hér á eftir þær upplýsingar sem okkur hefur tekist að afla, en samkomur af þessu tagi eru áreiðanlega víðar.

 

Akureyri:

Vinstri-Grænir á Akureyri og nágrenni ætla að halda upp á alþjóðlegan baráttudag verkafólks 1. maí, fagna útkomu Norðurstjörnunnar og spjalla saman um atvinnumál, kjaramál og stjórnmálin almennt. Opið hús verður í nýju húsnæði VG í Hafnarstræti 98 kl. 15 - 17 - eftir kröfugönguna. Formleg opnun á þessu nýja húsnæði verður síðar í maí þegar allt verður tilbúið, en það er tilvalið að líta þar inn á sunnudaginn og fá sér kaffi með góðum félögum. Svo er bæjarmálafundur eins og alltaf á mánudaginn klukkan 20-22 og þá eru einnig allir velkomnir.

Stjórn VG á Akureyri og nágrenni

 

Reykjavík:

Vinstrihreyfingin - grænt framboð  í Reykjavík býður upp á kaffi og kökur á verkalýðsdaginn í Suðurgötu 3. Húsið verður opnað kl. 14 og tekið á móti gestum fram eftir degi. Amal Tamimi flytur ávarp, ungir félagar lesa gömul ljóð og fjöldasöngur á sínum stað.

Allir velkomnir.

Stjórn VGR.

 

Kópavogur:

VG í Kópavogi verður með fyrsta maí kaffi í Hamraborg 20a frá klukkan 15:00 til kl. 17:00. Fjallað verður um sögu verkalýðsbaráttu í Kópavogi og upplestur. Kaffiveitingar í boði og allir velkomnir.

Stjórn VG í Kópavogi

 

Mosfellsbær:

Vinstri-Grænir í Mosfellsbæ bjóða upp á kaffi og meðlæti 1. maí í Urðarholti 4 eins og gert hefur verið undanfarna áratugi og þarf því varla að óttast að göngumótt og kaffiþyrst fólk rati ekki þangað að loknum skipulögðum hátíðahöldum í bænum.

Stjórn VG í Mosfellsbæ.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica