Samþykktir á félagsfundi VGR
Vinstri-Græn í Reykjavík héldu öflugan félagsfund í gær og höfðu um margt að ræða eins og þeir geta nærri sem fylgst hafa með umræðunni í fjölmiðlum undanfarna daga. Þar var m.a. farið yfir stöðuna í viðræðunum um sameiginlegt framboð R-lista og um ágreininginn í stjórn OR vegna hugmynda um orkuöflun til stóriðjuframkvæmda og reksturs. Samþykktar voru tvær tillögur á fundinum sem hér fara á eftir:
Sameiginlegt framboð byggist á jafnræði.
Tillaga frá stjórn VGR á félagsfundi 29. maí 2005. Samþykkt með þorra atkvæða.
Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík, haldinn 29. maí 2005, samþykkir að veita stjórn félagsins áframhaldandi umboð til könnunarviðræðna við Reykjavikurfélög Samfylkingar og Framsóknarflokks um sameiginlegt framboð vegna borgarstjórnarkosninganna 2006.
Félagið telur mikilvægt að hér eftir sem hingað til byggist sameiginlegt framboð á jafnræði milli flokkanna og virðingu fyrir grundvallarsjónarmiðum þeirra og starfsaðferðum .
Orkunýting framtíðarinnar taki mið af náttúruverndarsjónarmiðum
Tillaga frá Álfheiði Ingadóttur og Sverri Jakobssyni borin fram á félagsfundi VGR 29. maí 2005. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Félagsfundurinn vill af gefnu tilefni taka undir ályktun stjórnar félagsins frá því 25. maí sl. þar sem hörmuð er afstaða eins borgarfulltrúa Reykjavíkurlistans til sjónarmiða VG í orkumálum. Vinstrihreyfingin-grænt framboð hefur mótað skýra afstöðu og framtíðarsýn í orkumálum þjóðarinnar og í anda hennar mun flokkurinn einnig starfa á vettvangi sveitarfélaganna. Grundvöllur hennar er að orka frá endurnýjanlegum orkugjöfum leysi innflutta orku af hólmi, að dregið verði markvisst úr orkusóun og losun gróðurhúsalofttegunda og að ríkulegt tillit verði tekið til náttúruverndar og umhverfis við ákvarðanir um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Í þessu augnamiði leggur Vg til að forræði rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma verði fært frá iðnaðarráðherra til umhverfisráðherra. Af þessu má ljóst vera að Vg telur mikilvægt að í stað virkjanaáráttu ríkisstjórnarinnar eigi tafarlaust að ljúka vinnu við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og tryggja að orkunýting framtíðarinnar eigi að taka mið af náttúruverndarsjónarmiðum. Þá ber að kosta kapps um að virða Kyoto-bókunina um losun gróðurhúsalofttegunda.
Félagsfundurinn minnir á að orkustefnunefnd borgarinnar, sem skipuð var í kjölfar borgarstjórnarkosninga 2002, hefur skilað ítarlegum tillögum, þar sem m.a. er gert ráð fyrir að Orkuveita Reykjavíkur sinni fyrst og fremst almenningsmarkaði og taki ekki þátt í orkuöflun til stóriðju, nema í sérstöku félagi, þannig að áhætta og fjárskuldbinding vegna stóriðju lendi ekki á almennum orkunotendum. Þessari stefnumörkun ber OR og borginni að fylgja. Það er löngu orðið tímabært að umhverfis- og orkumál verði tekin nýjum tökum og einhæf græðgis- og eyðingarsjónarmið víki fyrir sjálfbærri auðlindanýtingu og umhverfisvernd í þágu fjölbreytts og skapandi atvinnulífs.

