Fréttir

Sumarferð í Suðurárbotna 6.-7. ágúst

22.6.2005

Sumarferðir VG hafa verið einstaklega skemmtilegar og vel heppnaðar. Farið hefur verið á Eyjabakkasvæðið og að Dimmugljúfrum, í Þjórsárver, í Flatey á Breiðafirði, í Skagafjörð með tilheyrandi flúðasiglingu, á Strandir og að Langasjó. Í sumarferð VG í ár er stefnan tekin á Suðurárbotna upp undir Ódáðahrauni. Gefst þar einstakt tækifæri til að fara um þetta fáfarna svæði undir leiðsögn þaulkunnugra heimamanna. Ekið verður framhjá Krákárbotnum og að Suðurá sem sprettur fram í geysilega vatnsmiklum uppsprettum undan norðvesturjaðri Ódáðahrauns. Landslag er sérstætt og stórbrotið á því svæði sem farið er um, auðn og hraun, svartir sandar og gróðurvinjar skiptast á og fjalla- og jöklasýn er tignarleg og fögur. Fararstjóri verður Steingrímur J. Sigfússon og leiðsögumenn verða þeir Hjörleifur Sigurðsson, bóndi og gangnaforingi á Grænavatni, og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, vanur gangnamaður frá Skútustöðum.

 

Í þetta sinn hefst sumarferðin okkar sem sagt í Mývatnssveit, en það getur sannarlega hentað mörgum sem verða á sumarleyfisferð á þessum slóðum eða geta tengt hana t.d. við afmælishaldið á Gunnarsstöðum. Sjálfsagt höfum við flest komið í þá fögru og merku Mývatnssveit, en ólíklegt að mörg okkar hafi farið á þær slóðir sem nú eru í boði.

                                      

Lagt verður upp frá Grænavatni í Mývatnssveit laugardaginn 6. ágúst, mæting klukkan 11:00. Ekið er að Grænavatni frá þjóðvegi 1 við Garð. Mikilvægt er að komast af stað fyrir hádegið svo náist að ganga um Suðurárbotna eða eiga daginn fyrir útivist á svæðinu áður en kvöldar. Rútuferð verður frá Grænavatni fyrir þá sem þess þurfa, en leiðin er aðeins fær vel búnum jeppum, sérstaklega á það við síðasta hluta leiðarinnar. Áætlað er að vera komin til baka klukkan 16.00 sunnudaginn 7. ágúst.

 

Farið kostar 4.000 kr. báðar leiðir.

 

Svefnaðstaða er fyrir 16 manns í gangnakofum á Stóru-Flesju og verða því flestir að hafa tjöld með sér, þeir sem verða að fá koju þurfa að taka það fram. Einnig hefur verið tekinn frá skáli Ferðafélags Akureyrar í Suðurárbotnum. Sá skáli tekur 16 manns, en er talsvert frá Stóru-Flesju eða tæplega klukkustundar akstur.

           

Hjörleifur Sigurðsson, bóndi og gangnaforingi Grænavatni IV, mun fræða ferðalanga um svæðið. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson frá Skútustöðum, gangnamaður á Framafrétti Mývetninga á unglingsárum, er reiðubúinn sem leiðsögumaður í 5-6 klst. skoðunarferð um Suðurárbotna. Þá verður gengið yfir brýr á Suðurá rétt hjá Stóru-Flesju, upp með ánni að sunnan eftir fjárgötum, fyrir upptök árinnar og niður með henni að norðan eftir akstursslóð. Gangan er ekki beinlínis erfið, þó stundum verði gengið upp í hraunkambinn. Þetta er eina raunverulega gönguleiðin ef farinn er hringur. Að sjálfsögðu er hægt að ganga skemmri leiðir upp og niður með ánni.

 

Þjóðlegur kvöldverður verður fram reiddur í boði flokksins. Kaffi, te og mjólk verður á staðnum, en allt annað nesti þurfa menn að taka með sér.

 

Rétt er að benda á að veitingaþjónusta og verslun er í Selinu á Skútustöðum ef menn vilja birgja sig þar upp fyrir ferðina. Þeir sem vilja gista í Selinu fyrir og eftir ferðina geta pantað sér gistingu þar eða verið á tjaldstæðinu.

 

Skráið ykkur sem fyrst hjá Svandísi í s. 845-5558 eða á vg@vg.is

 

Þeir sem ætla að fá far með rútunni þurfa að taka það fram við skráningu.

Þeir sem hafa pláss í jeppa og geta bætt við farþega ættu að koma því á framfæri við nefndina þegar þeir skrá sig.

Þeir sem verða að fá koju þurfa að láta þess getið þegar þeir skrá sig.

 

Ferðanefndin veitir upplýsingar og tekur við skráningum eftir 8. júlí:

 

Dýrleif Skjóldal Arnarsíðu 4a, sími: 462-6737  netfang dilla@akmennt.is

Hlynur Hallsson Ásabyggð 2,  sími: 462-3744  netfang hlynur@gmx.net

Valgerður Jónsdóttir Espihóli, sími: 462-7854  netfang valgerdur@nls.is

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica