Þingflokkur VG ályktar í tilefni af sölu Símans
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs mótmælir þeim vinnubrögðum og því óðagoti sem nú er viðhaft við að selja Símann, eina verðmætustu og mikilvægustu sameign þjóðarinnar. Enn og aftur eru nýjar reglur búnar til sem fyrst og fremst taka mið af pólitískum þörfum og vilja stjórnarflokkanna. Framganga stjórnarflokkanna í einkvæðingarmálum í heild sinni þarfnast ítarlegrar opinberrar rannsóknar og hefur sætt mikilli og almennri gagnrýni að undanförnu. Þeim mun ósvífnara er ríkisstjórnin fari fram með slíku offorsi að því er varðar Símann.
Þingflokkur VG ítrekar fyrri samþykktir sínar varðandi málefni Símans þar sem fram kemur meðal annars að þingflokkurinn telur brýnt að fyrirtækið sé í eigu almennings enda úrslitaatriði að því er varði byggðaþróun og jafna stöðu landsmanna. Þar er einnig bent á niðurstöður skoðanakannana þar sem fram kemur sá vilji meirihluta landsmanna að fyrirtækið sé áfram í opinberri eigu.

