Fréttir

Stækkandi félag í Vestmannaeyjum hélt aðalfund

23.1.2007

Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í  Vestmannaeyjum var haldinn 22. jan. sl.

Ný stjórn var kosin og skipa þessir hana: Jóhanna Njálsdóttir, Aldís Gunnarsdóttir og Katrín Freysdóttir.

Auk venjulegra aðalfundastarfa var hafinn undirbúningur félagsins í Vestmannaeyjum að Alþingiskosningunum 12 . maí.  Félagið mun m.a. halda fundi hálfs mánaðarlega fram að kosningum þar sem farið er yfir málefnavinnu og áherslur Vinstri grænna bæði á landsvísu og með sérstakri áherslu á Vestmannaeyjar. Þessir fundir eru öllum opnir og eru nýir félagar hvattir til að koma og hafa áhrif á stefnumál flokksins fyrir komandi kosningar og til framtíðar. Þeir sem þátt vilja taka í málefnavinnu geta það auðveldlega með því að hafa samband við einhvern stjórnarmann eða aðra félaga í VG í Vestmannaeyjum. Þá er stefnt að því að opna kosningaskrifstofu eins fljótt og aðstæður leyfa.

 

Mjög ánægjulegt er að félögum í VG í Vestmannaeyjum hefur fjölgað að undanförnu og sýnir það að hreyfingin á sér sannarlega hljómgrunn meðal Vestmannaeyinga.

 

Á aðalfundinum voru kosnir 6 fulltrúar á landsfund Vinstri grænna sem haldinn verður 23.- 25. feb. nk.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica