Félagsfundur VG í Hafnarfirði ályktar um stækkun álvers
Á opnum félagsfundi VG í Hafnarfirði í gærkvöldi var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða:
Fyrirhuguð stækkun álversins í Straumsvík hefur gríðarleg áhrif á Hafnarfjörð, út frá ímynd bæjarins, mengun lofts og sjónmengun. Það er eðlilegt þegar taka á ákvarðanir um svo veigamiklar breytingar sem varða nágrenni Hafnarfjarðar, íbúana og framtíð bæjarins svo miklu, að íbúar fái sjálfir að segja sitt álit.
Opinn fundur um stækkun álversins í Straumsvík þann 14. ágúst 2005 samþykkir að fela stjórn VG í Hafnarfirði að standa fyrir undirskriftasöfnun þar sem skorað er á bæjarstjórn að halda íbúakosningar um fyrirhugaða stækkun álversins í Straumsvík.

