Fréttir

Ekki samkomulag um skráningu herþotna

2.9.2010

Forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem komið er á framfæri leiðréttingu við fréttir af málefnum hollenska fyrirtækisins ECA. Í yfirlýsingunni eru bornar til baka fréttir af því að náðst hafi samkomulag í ríkisstjórn um að samgöngu- og sveitastjórnarráðherra veitti Flugmálastjórn heimild til að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ekkert slíkt samkomulag er til staðar.

Hins vegar er í gildi samkomulag á milli flokkanna um framhald málsins sem unnið var af aðstoðarmönnum fjármálaráðherra og fv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sem gerir ráð fyrir að Flugmálastjórn upplýsi um titekin atriði sem verði lögð til grundvallar við framhald málsins.

Nýr samgöngu- og sveitastjórnaráðherra, Ögmundur Jónasson, mun kynna sér stöðu málsins og vinna það áfram að í samræmi við samkomulag stjórnarflokkanna.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica